Staðan á stelpunum okkar - Lykilpóstar í gír og spennandi nýliðar
Skrifar frá flugvellinum í Basel

Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Cecilía hefur farið vel af stað með Inter.

Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal

Líf er nýliði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karólína hefur komið að mörkum í báðum deildarleikjum Inter.

Mynd: KSÍ

Ída Marín var besti leikmaður Íslandsmótsins framan af sumri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur skipti yfir til Newcastle í sumar.

Mynd: Newcastle

Ásdís Karen stoppaði stutt hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveindís hefur verið að spila mjög vel í einni sterkustu deild heims.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlín hefur fundið sig vel hjá Malmö.

Mynd: Malmö

Emelía er nýliði í hópnum en hún spilar með sterkasta liði Danmerkur.

Mynd: HB Köge

Thelma Karen, 18 ára, er að blómstra með besta liði Svíþjóðar.

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Hópurinn er svolítið breyttur að þessu sinni þar sem mikilvægir póstar eru fjarverandi. Ingibjörg Sigurðardóttir á von á barni og svo eru Sandra María Jessen og Linda Líf Boama báðar meiddar.
En hvernig er staðan á leikmönnunum okkar fyrir þetta verkefni? Skoðum það.
Telma Ívarsdóttir - Víkingur R. - 12 leikir
Sneri í sumar heim til Íslands og samdi við Víking. Spilaði þar níu leiki og átti góða leiki - þar á meðal stórleik í Kaplakrika - en náði ekki að hjálpa liðinu að halda sér uppi.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 31 leikur
Aðalmarkvörður landsliðsins hefur farið virkilega vel af stað á tímabilinu með ítalska stórliðinu Inter og átti stóran þátt í því að liðið komst í deildarkeppni Meistaradeildarinnar. Hún var hetjan í vítaspyrnukeppni gegn Wolfsburg og kemur inn í þetta verkefni með bullandi sjálfstraust.
Fanney Inga Birkisdóttir - Valerenga - 8 leikir
Var keypt til Vålerenga í Noregi í sumar eftir dvöl hjá Häcken í Svíþjóð en bæði lið eru meðal þeirra sterkustu í Skandinavíu. Fanney hefur spilað svo gott sem alla leiki með Vålerenga eftir að hún gekk í raðir félagsins en liðið situr þessa stundina í fjórða sæti norsku deildarinnar.
Varnarmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby - 18 leikir, 1 mark
Hefur verið inn og út úr liðinu hjá Bröndby sem er í toppbaráttu í Danmörku. Hefur komið við sögu í sjö leikjum á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni og skorað eitt mark, en hún spilaði 21 mínútu gegn erkifjendunum í FC Kaupmannahöfn í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgården- 2 leikir
Hefur komið við sögu í öllum deildarleikjum Djurgården á þessu tímabili en liðið er í tíunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Hún spilaði 45 mínútur í síðasta leik liðsins fyrir landsleikjahlé, í 2-1 sigri gegn AIK.
Glódís Perla Viggósdótttir - Bayern München - 148 leikir, 13 mörk
Landsliðsfyrirliðinn er líka með fyrirliðabandið hjá Bayern München sem er eitt sterkasta lið Evrópu. Glódís hefur verið virkilega góð fyrir Bayern sem hefur unnið alla sína leiki til þessa í þýsku úrvalsdeildinni og þá er hún búin að skora eitt mark. Hefur spilað 90 mínútur í hverjum einasta leik í þýsku deildinni og Meistaradeildinni til þessa.
Guðrún Arnardóttir - Hammarby - 63 leikir, 1 mark
Er að spila svo gott sem hverja einustu mínútu hjá Hammarby sem situr þessa stundina í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir Häcken. Hún hefur líka skorað þrjú mörk. Er að spila í hjarta varnarinnar hjá Häcken og mun líklega spila þar í komandi landsliðsverkefni eftir að hafa leikið mikið í bakverði hjá landsliðinu.
Arna Eiríksdóttir - Valerenga - 4 leikir
Fyrir framan Fanneyju er Arna Eiríksdóttir að spila stórt hlutverk í vörninni hjá Valerenga, einu sterkasta liði Noregs. Arna, sem fór út til Valerenga frá FH í fyrra, hefur spilað hvern einasta leik í norsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Jelena Tinna Kujundzic - Þróttur R.
Natasha Anasi þurfti að draga sig úr hópnum á dögunum vegna meiðsla og inn í hennar stað kom Jelena, sem hefur átt gott sumar með Þrótti í Bestu deildinni. Þetta er annað verkefni sem hún er kölluð inn í með landsliðinu. Hún hefur í sumar spilað 19 leiki í Bestu deildinni með Þrótti og hjálpaði liðinu jafnframt að vinna bikarmeistaratitilinn á Laugardalsvelli.
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Líf er annar af tveimur nýliðum í þessum landsliðshópi en hún hefur vakið athygli fyrir sína frammistöðu með Breiðabliki, toppliði Bestu deildarinnar í sumar. Líf, sem er 19 ára í dag, hefur spilað 19 leiki með Breiðabliki í Bestu deildinni í sumar og skorað sex mörk. Hún er hugsuð sem bakvörður í landsliðinu en hefur mest spilað framar hjá Blikum í sumar.
Miðjumenn
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstad - 65 leikir, 7 mörk
Er lykilmaður á miðsvæðinu hjá Kristianstad sem er í fimmta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Hún hefur spilað 19 leiki á tímabilinu og skorað eitt mark. Hún hefur spilað 90 mínútur í öllum leikjum síðan 1. ágúst.
Katla Tryggvadóttir - AFC Fiorentina - 13 leikir
Katla er á mála hjá Fiorentina, sem er meðal stærstu félaga Ítalíu. Hún er á sínu öðru tímabili hjá félaginu og hefur komið við sögu í fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins, en hún byrjaði síðasta leik og spilaði þá 65 mínútur í sigri gegn Sassuolo.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan - 64 leikir, 15 mörk
Karólína er í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu en hún er að hefja sitt annað tímabil hjá Inter. Þar hefur hún farið nokkuð vel af stað á nýju tímabili og er búin að skora eitt og leggja upp eitt í fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins á Ítalíu. Þá spilaði hún mikið í einvíginu gegn Wolfsburg í Meistaradeildinni.
Ída Marín Hermannsdóttir - Hammarby - 9 leikir
Ída Marín átti frábært tímabil með FH framan af sumri og var besti leikmaður Bestu deildarinnar áður en hún var seld til Svíþjóðar, til Hammarby sem er í öðru sæti sænsku deildarinnar. Ída hefur verið að koma sér inn í hlutina hjá Hammarby en er hingað til búin að koma að fjórum mörkum í fimm leikjum.
Hildur Antonsdóttir - Newcastle United - 37 leikir, 2 mörk
Hildur skipti yfir til Englands í sumar og samdi við Newcastle United, sem leikur þar í næst efstu deild. Hildur hefur byrjað fjóra af fimm leikjum liðsins í deildinni á þessu tímabili en Newcastle hefur unnið alla leiki sína hingað til. Hildur skoraði síðasta leik í 3-0 sigri gegn Durham.
Framherjar
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig - 15 leikir, 1 mark
Emilía, sem er 21 árs gömul, er núna á sínu þriðja tímabili með Leipzig sem leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Hún hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins á tímabilinu hingað til og byrjað fimm þeirra. Hún kemur með sjálfstraust inn í þetta landsliðsverkefni þar sem hún hefur komið að fjórum mörkum í síðustu þremur leikjum.
Ásdís Karen Halldórsdóttir - AIK - 2 leikir
Ásdís Karen stoppaði stutt á Íslandi í sumar þegar hún samdi við FH eftir að hafa leikið með Lilleström, Madríd CFF og Braga þar á undan. Hún spilaði aðeins þrjá leiki með FH áður en hún var komin aftur út í atvinnumennsku en í þetta skiptið fór hún til Svíþjóðar. Hún hefur byrjað hvern einasta leik með AIK frá því hún fór aftur út, spilað fimm leiki og skorað eitt mark í sænsku úrvalsdeildinni.
Birta Georgsdóttir - Parma - 2 leikir
Birta fór út í atvinnumennsku í fyrra eftir að hafa átt stórkostlegt sumar með Breiðabliki þar sem hún kom að 25 mörkum. Hún fór fyrst til Genoa þar sem hún spilaði tólf leiki og skoraði tvö mörk í ítölsku úrvalsdeildinni. Núna er hún komin til Parma þar sem hún hefur ekki verið með í fyrstu tveimur leikjum ítölsku deildarinnar.
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City - 60 leikir, 16 mörk
Sveindís Jane hefur tekið stór skref fram á við á sínu öðru tímabili með Angel City í Bandaríkjunum. Hún fann ekki alveg taktinn á síðasta tímabili en á yfirstandandi leiktíð hefur hún hins vegar skorað átta mörk í 20 leikjum og verið einn öflugasti leikmaðurinn í einu sterkasta lið bandarísku deildarinnar. Hún er á frábærum stað sem eru góð tíðindi fyrir Ísland.
Hlín Eiríksdóttir - Malmö FF - 60 leikir, 8 mörk
Hlín skipti nýverið yfir til Malmö í Svíþjóð eftir að hlutirnir gengu ekki alveg hjá henni hjá Leicester á Englandi og hjá Fiorentina á Ítalíu. Í Svíþjóð hefur hún fundið sig vel og er búin að skora sex mörk í tíu deildarleikjum. Hún hefur spilað mikið að undanförnu og lagði upp mark gegn St. Pölten í Evrópubikarnum fyrir stuttu.
Diljá Ýr Zomers - Brann - 27 leikir, 2 mörk
Diljá er á sínu öðru tímabili með norska félaginu Brann og hefur hún fundið sig betur á þessu tímabili en því síðasta. Hún hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú fyrir Brann í 18 leikjum í norsku úrvalsdeildinni. Hún skoraði gegn HJK frá Finnlandi í Evrópubikarnum á dögunum.
Emelía Óskarsdóttir - HB Köge
Emelía, sem er með mikil fótboltagen, er komin inn í landsliðshópinn eftir að hafa glímt töluvert við meiðsli síðustu ár. Hún er núna að spila með besta liði Danmerkur, HB Köge, og hefur þar skorað þrjú mörk í níu deildarleikjum. Hún hefur mest verið í því að koma inn af bekknum en hefur verið að gera vel samt sem áður. Emelía er aðeins tvítug og verður gaman að fá hana inn í hópinn.
Thelma Karen Pálmadóttir - Häcken - 5 leikir, 1 mark
Hin bráðefnilega Thelma Karen Pálmadóttir hefur komið af krafti inn í landsliðshópinn og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í síðasta glugga. Thelma Karen, sem er 18 ára gömul, hefur leikið afar vel með Häcken, sterkasta liði Svíþjóðar, á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og er búin að skora fimm mörk og leggja upp önnur fimm. Hún hefur spilað alla leiki Häcken á tímabilinu.

Cecilía hefur farið vel af stað með Inter.

Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal

Líf er nýliði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karólína hefur komið að mörkum í báðum deildarleikjum Inter.

Mynd: KSÍ

Ída Marín var besti leikmaður Íslandsmótsins framan af sumri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur skipti yfir til Newcastle í sumar.

Mynd: Newcastle

Ásdís Karen stoppaði stutt hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveindís hefur verið að spila mjög vel í einni sterkustu deild heims.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlín hefur fundið sig vel hjá Malmö.

Mynd: Malmö

Emelía er nýliði í hópnum en hún spilar með sterkasta liði Danmerkur.

Mynd: HB Köge

Thelma Karen, 18 ára, er að blómstra með besta liði Svíþjóðar.

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir
