Fotbolti.net
06.11.26 - 22:27
Ívan Guðjón Baldursson
Franska deildin

Evrópa: Jörgensen lélegur - Gladbach á botninum

Evrópa: Jörgensen lélegur - Gladbach á botninum
Canon

Mynd: EPA

Það fóru nokkrir leikir fram í evrópska boltanum fyrr í kvöld þar sem Filip Jörgensen átti lélegan leik á milli stanga Strasbourg í frönsku deildinni.
Jörgensen er hjá Strasbourg á láni frá Chelsea og er hægt að skrifa tvö af þremur mörkum á hann í 3-1 tapi gegn Toulouse.

Bæði mörkin þar sem um er að sakast við Jörgensen komu eftir hornspyrnur en Strasbourg hefur farið illa af stað á tímabilinu og er aðeins með 10 stig eftir 10 umferðir.

Giovanni Reyna skoraði eina mark Strasbourg í tapinu.

Borussia Mönchengladbach vermir þá áfram botnsætið í þýsku deildinni eftir tap gegn Hamburger SV, sem byrjaði af miklum krafti og náði forystunni með langskoti af um 30 metra færi. Þar var varnarmaðurinn Miro Muheim á ferðinni og komust liðsfélagar hans nálægt því að tvöfalda forystuna skömmu síðar, en tókst ekki.

Gestirnir frá Gladbach svöruðu fyrir sig með að skapa góð færi áður en Robin Hack jafnaði metin með lúmsku skoti utan teigs skömmu fyrir leikhlé.

Hlutirnir breyttust þó í síðari hálfleik þegar Ko Itakura fékk að líta seinna gula spjaldið sitt fyrir heimskulegt brot. Tíu leikmenn Gladbach réðu ekki við HSV sem bættu tveimur mörkum við í síðari hálfleik og skópu að lokum verðskuldaðan 3-1 sigur. Albert Grönbæk skoraði og lagði upp fyrir HSV.

HSV er með 12 stig eftir 9 umferðir af deildartímabilinu á meðan Gladbach situr eftir með 4 stig í botnsætinu.

Sevilla og Alavés áttust að lokum við í efstu deild á Spáni og gerðu markalaust jafntefli.

Heimamenn í Sevilla fengu besta færið þegar Rubén Vargas steig á vítapunktinn en klúðraði, í leik sem var annars nokkuð bragðdaufur og tíðindalítill. Sevilla var sterkara liðið en tókst ekki að skora.

Sevilla er í sjötta sæti með 18 stig eftir 12 umferðir, fimm stigum meira heldur en Alavés.

Toulouse 3 - 1 Strasbourg
1-0 Santiago Hidalgo ('45 )
2-0 Mark McKenzie ('56 )
2-1 Giovanni Reyna ('67 )
3-1 Thomas Jorgensen ('76 )

Hamburger SV 3 - 1 Mönchengladbach
1-0 Miro Muheim ('11 )
1-1 Robin Hack ('44 )
2-1 Shafiq Nandja ('59 )
3-1 Albert Gronbaek ('70 )
Rautt spjald: Ko Itakura, Gladbach ('49)

Sevilla 0 - 0 Alaves
0-0 Ruben Vargas ('32 , Misnotað víti)
Evrópa: Jörgensen lélegur - Gladbach á botninum
Canon

Mynd: EPA

Evrópa: Jörgensen lélegur - Gladbach á botninum
Canon

Mynd: EPA

Evrópa: Jörgensen lélegur - Gladbach á botninum
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Hamburger9-1012
9Frankfurt8-511
10Mainz8010
11Augsburg8+39
12Stuttgart8-19
13Hoffenheim8-29
14Köln8-39
15Paderborn8-39
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.