Fotbolti.net
06.11.26 - 20:13
Elvar Geir Magnússon

Tekur Rikki Daða við Gróttu?

Rikki Daða í góðum félagsskap á vellinum.

Rikki Daða í góðum félagsskap á vellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Ríkharður Daðason er orðaður við þjálfarastöðuna hjá Gróttu í Lengjudeildinni en hann tók við 3. flokki hjá félaginu fyrr á þessu ári.

Kristján Óli Sigurðsson, umsjónarmaður Þungavigtarinnar, segir Ríkharð í bílstjórasætinu að taka við Gróttu en félagið er í þjálfaraleit eftir að Rúnar Páll Sigmundsson kvaddi og tók við Stjörnunni.
Rikki Daða á bikarmeistaratitil sem þjálfari en hann tók við Fram sumarið 2013 og vann bikarinn á Laugardalsvelli.

Á glæsilegum ferli lék hann sem framherji með Fram, KR, Viking, Lilleström, Fredrikstad, Kalamata og Stoke City. Hann lék 44 landsleiki og skoraði 14 mörk þar með talið eitt frægasta mark Íslandssögunnar á Laugardalsvelli gegn Frakklandi árið 1998.

Davíð Smári Lamude, sem hætti nýlega með Njarðvík, hefur hvað helst verið orðaður við Gróttu hingað til en hann fundaði með félaginu á dögunum.


Tekur Rikki Daða við Gróttu?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.