06.11.26 - 20:06
Ívan Guðjón Baldursson
Nóel Atli skoraði og Adam Ingi hélt hreinu

Mynd: Álaborg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Álaborg
Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn og skoraði eina mark AaB í jafntefli gegn HB Köge í næstefstu deild danska boltans í dag.
Nóel Atli kom Álaborg yfir snemma leiks og var staðan 0-1 í leikhlé, en heimamönnum í liði Köge tókst að jafna í upphafi síðari hálfleiks.
AaB fékk frábært færi til að gera sigurmark í síðari hálfleik en boltinn rataði ekki í netið, svo lokatölur urðu 1-1. Nóel og félagar eru um miðja deild með 16 stig eftir 14 umferðir.
Adam Ingi Benediktsson hélt þá hreinu í þægilegum sigri AB gegn Vendsyssel. Lokatölur urðu 3-0 og stóð Adam Ingi sig vel á milli stanganna.
AB er í fjórða sæti með 21 stig eftir 14 umferðir, átta stigum frá toppsætinu. Fannar Berg Gunnólfsson þjálfar AB og var þetta fimmti sigurinn í síðustu sex deildarleikjum liðsins.
Í efstu deild í Danmörku tapaði Íslendingalið Lyngby á útivelli gegn Silkeborg. Ísak Snær Þorvaldsson og Davíð Helgi Aronsson voru meðal byrjunarliðsmanna Lyngby og kom William Steindórsson, sem á íslenskan afa, inn af bekknum. Þá var Daníel Freyr Kristjánsson ónotaður varamaður.
Lyngby er í fallbaráttu með 11 stig eftir 14 umferðir. Tapið gegn Silkeborg er skellur þar sem aðeins eitt stig skildi að á milli liðanna fyrir upphafsflautið.
Að lokum sigruðu liðsfélagar Andra Fannars Baldurssonar í Kasimpasa í efstu deild í Tyrklandi, en Andri Fannar var ekki í hóp frekar en í síðustu umferð. Kasimpasa er á fleygiferð og situr í fjórða sæti með 20 stig eftir 11 umferðir.
HB Köge 1 - 1 AaB
0-1 Nóel Atli Arnórsson ('10)
1-1 F. Isaki ('49)
AB 3 - 0 Vendsyssel
Silkeborg 1 - 0 Lyngby
Gaziantep 0 - 2 Kasimpasa