06.11.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Mainoo átt erfiðan kafla

Kobbie Mainoo er ekki í landsliðshópnum.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Dewsbury-Hall.

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands hefur valið hóp sinn fyrir Þjóðadeildarleiki gegn Króatíu 12. nóvember og Spáni 15. nóvember.
Ekki er pláss fyrir Kobbie Mainoo, miðjumann Manchester United í hópnum. Jobe Bellingham, bróðir Jude Bellingham, var valinn framyfir Mainoo.

TENGT EFNI
Bellingham bræður í enska landsliðshópnum
„Mér finnst Kobbie hafa átt erfitt tímabil með félaginu sínu og á meðan var það Jobe Bellingham sem vakti athygli á sama tíma. Það er það sem við viljum. Dyrnar eru alltaf opnar fyrir yngri leikmenn til að ná fram úr og láta til sín taka," segir Tuchel.
Jobe Bellingham er miðjumaður Dortmund.
„Lee Carsley (þjálfari U21 landsliðsins) lofsamar hann. Hann er leikmaður sem stendur upp úr. Hann er fyrirliði U21 liðsins svo ég tel að dyrnar ættu alltaf að vera opnar og leiðin ætti alltaf að vera opin fyrir frábæra frammistöðu yfir langan tíma. Hann fann sína leið með Dortmund, þar sem hann hefur byrjað tímabilið frábærlega. Hann er fastamaður þar og hefur nú mikil áhrif," segir Tuchel.
Dewsbury-Hall nálægt hópnum
Kiernan Dewsbury-Hall, leikmaður Everton, hefur með frammistöðu sinni bankað á dyrnar á hópnum og er óheppinn að vera ekki í hópnum núna.
„Hann er nálægt hópnum. Mjög góður leikmaður, mjög gott tímabil. Samkeppnin er mjög, mjög mikil í liðinu okkar í þessari stöðu," segir Tuchel.