06.11.26 - 20:33
Elvar Geir Magnússon
Leiktímarnir í umspili U21 landsliðsins vekja athygli

Amin Cosic, leikmaður U21 landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Amin Cosic, leikmaður U21 landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Í vikunni var leikmannahópur U21 landsliðsins sem leikur umspilsleikina gegn Grikklandi um laust sæti á EM á næsta ári tilkynntur.
Leikið verður á Pepsi-vellinum, heimavelli Þróttar, fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 13:00 og mánudaginn 16. nóvember á Apostolos Nikolaidis Stadium í Aþenu klukkan 17:00.

TENGT EFNI
U21 hópurinn sem mætir Grikkjum um sæti á EM - Fyrirliðinn ekki með
Heimaleikurinn verður spilaður svona snemma dags á virkum degi þar sem flóðljósin á vellinum eru ekki nægilega góð og standast ekki kröfur UEFA.
Bakhjarlar KSÍ munu þó reyna að aðstoða við að fá fólk á völlinn og bjóða frítt á leikinn. Bakhjarlar KSÍ eru N1, Icelandair, Landsbankinn, Ölgerðin, Íslandshótel, Lengjan, Eimskip og Puma.
Þá vekur leiktími seinni leiksins athygli þar sem hann er á nákvæmlega sama tíma og A-landslið Íslands mun leika gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli. Hann hefst klukkan 17 á mánudeginum 16. nóvember eins og leikurinn í Grikklandi.