06.11.26 - 21:44
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Þórir og félagar höfðu betur í botnslagnum

Kike Pérez skoraði sigurmarkið.

Mynd: EPA

Kike Pérez skoraði sigurmarkið.

Mynd: EPA
Venezia 2 - 1 Udinese
1-0 Toma Basic ('53 )
1-1 Matias Moreno ('57 , sjálfsmark)
2-1 Enrique Perez ('65 )
1-0 Toma Basic ('53 )
1-1 Matias Moreno ('57 , sjálfsmark)
2-1 Enrique Perez ('65 )
Þórir Jóhann Helgason fékk að spila síðustu mínútur leiksins er Venezia vann gríðarlega dýrmætan sigur á Udinese í botnslag ítölsku deildarinnar.
Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn í Feneyjum þar sem heimamenn voru sterkari aðilinn og fengu besta færið.
Seinni hálfleikurinn var talsvert jafnari og náði Toma Basic forystunni fyrir heimamenn á 53. mínútu, en gestirnir frá Údíne svöruðu skömmu síðar þegar Matías Moreno varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Kike Pérez endurheimti forystu Venezia á 65. mínútu og tókst gestunum ekki að jafna metin á lokakaflanum, svo lokatölur urðu 2-1.
Niðurstaðan er því gríðarlega dýrmætur sigur fyrir Þóri Jóhann og félaga sem eiga núna 6 stig eftir 11 umferðir. Udinese situr í botnsætinu með 5 stig.