06.11.26 - 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þegar við vinnum er andstæðingurinn slakur"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Luciano Spalletti, stjóri Juventus, svaraði gagnrýnisröddum eftir 2-1 sigur Juventus gegn AZ Alkmaar á útivelli í Evrópudeildinni í gær.
Juventus var með 2-0 forystu í hálfleik en AZ Alkmaar setti mikla pressu á ítalska liðið í seinni hálfleik. Mexx Meerdink náði að minnka muninn en nær komust þeir ekki. Þetta var fyrsta tap AZ á heimavelli í Evrópukeppni í þrjú ár.

„Ég man þegar þið hlóguð í andlitið á mér þegar við unnum NEEC 5-0, þið létuð eins og þeir væru fáránlegt lið en NEC er með sjö stig í Evrópudeildinni," sagði Spalletti.
„Þegar við vinnum lætur fólk eins og það sé af því að andstæðingurinn er slakur eða finna einhverja aðra afsökun. Við spiluðum vel gegn frábæru liði og við sáum að þegar ákefðin minnkar hjá okkur nýttu þeir sér það."