Fotbolti.net
06.11.26 - 11:21
Elvar Geir Magnússon

Af hverju velur Tuchel ekki Palmer?

Palmer er úti í kuldanum hjá Tuchel.

Palmer er úti í kuldanum hjá Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea sagði enska landsliðinu að Cole Palmer væri heill og tiltækur þegar starfsfólk landsliðsins hafði samband við félagið í þessari viku.

Það kemur því nokkuð á óvart að Palmer, 24 ára, sé ekki í hópi Thomas Tuchel fyrir komandi leiki gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeildinni.

Palmer hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú á þessu tímabili.
Bellingham bræður í enska landsliðshópnum
TENGT EFNI

Bellingham bræður í enska landsliðshópnum

„Við höfum nægilega marga sóknarmiðjumenn og við höldum okkur við strákana sem voru í fyrri verkefnum því við vorum ánægðir með þá í þær vikur sem við fengum saman. Palmer hefur ekki nýtt þau tækifæri sem hann hefur fengið til að sýna sig hjá okkur," sagði Tuchel á fréttamannafundi þegar hann var spurður út í fjarveru Palmer.

Kom til félagsins átta ára gamall
Josh King, 19 ára miðjumaður Fulham, er valinn í fyrsta sinn

„Við höfum Josh King sem nýjan leikmann þarna inni, ég get notað hann á báðum vængjum. Hann er eins konar aukaleikmaður og hann getur spilað allar fjórar sóknarstöðurnar. Hann er spennandi leikmaður, fjölhæfur leikmaður," segir Tuchel.

Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, var á fréttamannafundi spurður út í valið á King en þessi ungi leikmaður kemur úr akademíu félagsins.

„Þetta er sérstök stund fyrir hann, einnig fyrir okkur sem félag og stuðningsmenn okkar. Hann kom til þessa félags þegar hann var átta ára gamall og nú horfir maður á hvernig hann spilar og stendur sig, svo já, við erum mjög stolt. Þetta er stórt skref fyrir hann og ég er svo ánægður fyrir hans hönd því hann er mjög auðmjúkur strákur. Maður sér á hverjum degi að hann vill bæta sig. Svo þetta er sérstök stund fyrir hann og fyrir okkur," segir Arbeloa.

Fær lof úr U21 landsliðinu
Jobe Bellingham, 21 árs sóknarsinnaður miðjumaður Dortmund, er einnig nýliði í hópnum. Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid, er bróðir hans og þeir hafa farið svipaða leið á ferlinum.

„Lee Carsley (þjálfari U21 landsliðsins) lofsamar hann. Hann er leikmaður sem stendur upp úr. Hann er fyrirliði U21 liðsins svo ég tel að dyrnar ættu alltaf að vera opnar og leiðin ætti alltaf að vera opin fyrir frábæra frammistöðu yfir langan tíma. Hann fann sína leið með Dortmund, þar sem hann hefur byrjað tímabilið frábærlega. Hann er fastamaður þar og hefur nú mikil áhrif," segir Tuchel
Josh King.

Josh King.

Canon

Mynd: Fulham

Jobe Bellingham.

Jobe Bellingham.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.