Fotbolti.net
06.11.26 - 09:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vonar að Aron nái að jafna metið en lofar engu: Held að hann sé ekki sáttur

Vonar að Aron nái að jafna metið en lofar engu: Held að hann sé ekki sáttur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson tilkynnti í september að yfirstandandi Þjóðadeild yrði hans síðasta keppni með landsliðinu. Gamli fyrirliðinn, sem leiddi Ísland á EM og HM, er 37 ára og hefur spilað 111 landsleiki.

Þegar Aron tilkynnti ákvörðun sína átti hann möguleika á því að bæta landsleikjamet Birkis Bjarnasonar en núna, eftir að hafa spilað einn leik í síðasta verkefni, getur hann í mesta lagi jafnað metið með því að taka þátt í lokaleikjunum tveimur.

Ákvörðun landsliðsþjálfarans Arnars Gunnlaugssonar að tefla Aroni ekki oftar fram í síðustu leikjum hefur verið gagnrýnd.

Landsliðsþjálfarinn valdi Aron í landsliðshópinn á miðvikudag fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg og á fréttamannafundi var hann spurður út í gamla fyrirliðann.
Aron um leikjametið og bekkjarsetuna í Lúxemborg - „Breyti ekki ákvörðun þjálfarans“
TENGT EFNI

Aron um leikjametið og bekkjarsetuna í Lúxemborg - „Breyti ekki ákvörðun þjálfarans“

Heldur þú að hann sé sáttur við að í besta falli jafna leikjametið og verður einhver kveðjustund eftir lokaleikinn?

„Ég held að hann sé ekki sáttur við það, ég myndi ekki vera sáttur við það í hans sporum. Það var ofboðslega leiðinlegt að geta ekki gefið honum fleiri mínútur, en við trúum því að þessi bransi sé ekki að gefa fólki mínútur. Aðstæður voru þannig í þessum leikjum og hafa verið þannig í öllum landsleikjum að það er enginn að gefa nokkurn skapaðan hlut."

„Ég held, þó að hann sé ekki sáttur, að Aron skilji það mjög vel. Núna hugsar hann örugglega að fyrst hann nær ekki að slá metið og eiga það einn, væri þá ekki fínt að jafna metið? Þá þarf að mæta vel gíraður í verkefnið og gefa af sér eins og hann hefur alltaf gert."

„Orri (Steinn Óskarsson, fyrirliði liðsins) hefur talað sérstaklega um hversu flott fyrirmynd Aron hefur verið, eins og hann sé að afhenda honum lyklana að fyrirliðahlutverkinu."

„Aron hefur ýmislegt til brunns að bera og getur gefið okkur mjög mikið eins og ég hef alltaf talað um. Hann fékk fínar mínútur á móti Búlgaríu og stóð sig í fínu lagi, skiptingin hafði ekkert með það að gera hvort hann væri lélegur eða ekki. Svo voru hinir leikirnir þess eðlis að tilfinningin að setja hann inn á kom ekki."

„Vonandi gengur það þannig upp að hann fái mínútur í báðum leikjunum og nær að jafna metið. En ef ekki, þá er það bara þannig,"
sagði þjálfarinn.

Landsliðið kemur saman á Spáni á mánudag, heldur svo til Búlgaríu og mætir heimamönnum næsta föstudag. Annan mánudag kemur svo Lúxemborg í heimsókn á Laugardalsvöll í lokaleik riðilsins.
Vonar að Aron nái að jafna metið en lofar engu: Held að hann sé ekki sáttur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Vonar að Aron nái að jafna metið en lofar engu: Held að hann sé ekki sáttur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vonar að Aron nái að jafna metið en lofar engu: Held að hann sé ekki sáttur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.