Fotbolti.net
06.11.26 - 08:36
Elvar Geir Magnússon

Rooney verðlaunaður sem besti sérfræðingurinn

Mark Goldbridge og Wayne Rooney.

Mark Goldbridge og Wayne Rooney.

Canon

Mynd: Stick to United

Wayne Rooney, fyrrum sóknarmaður Manchester United, var í gær verðlaunaður sem besti sérfræðingurinn á íþrótta-útsendingaverðlaunahátíðinni í Lundúnum.

Þegar Rooney byrjaði fyrst sem sérfræðingur í sjónvarpi fékk hann blendnar viðtökur en hefur tekið gríðarlegum framförum og var frábær í þessu hlutverki á HM í sumar.
„Fyrst þegar ég fór í þetta hlutverk gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað þetta væri erfitt. Ég er sjálfur minn helsti gagnrýnandi og eins og í öllu sem ég tek mér fyrir hendur reyni ég að bæta mig. Það hefur farið mikil vinna í það," segir Rooney,

Hann fær hrós frá Philip Bernie, útsendingastjóra íþrótta hjá BBC.

„Hann hefur sýnt mikinn vilja og ákveðni til að bæta sig í þessu starfi. Hann er mjög geðþekkur náungi og kemur eins fram við alla sem hann starfar með, hvort sem það eru fyrrum samherjar hans eða starfsmaður í þjálfun," segir Bernie.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.