Fotbolti.net
06.11.26 - 09:05
Elvar Geir Magnússon

Ákærð fyrir að hafa ranglega sakað Mendes um nauðgun

Ryan Mendes.

Ryan Mendes.

Canon

Mynd: EPA

Lögreglan í Nýja-Sjálandi hefur ákært konu fyrir að hafa logið og ranglega ásakað Ryan Mendes, fyrirliða landsliðs Grænhöfðaeyja, um nauðgun.

Mendes og félagar komu skemmtilega á óvart á HM í sumar en á miðju móti bárust fréttir af því að hann væri sakaður um nauðgun.

Umrædd kona er 40 ára, er frá Brasilíu og starfaði sem túlkur fyrir landslið Grænhöfðaeyja í ferð þess til Nýja-Sjálands.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Scott Beard segir að fullyrðingar konunnar um að kynferðisbrot hefði átt sér stað á hóteli í Auckland í mars hefðu verið rangar. Hún hefur verið ákærð og kemur fyrir dómstóla í næstu viku.

„Ákvörðun um að höfða mál við þessar aðstæður er ekki léttvæg og kemur í kjölfar margra mánaða rannsóknarvinnu hjá teymi okkar,“ segir Beard.

Þessar ásakanir báru á góma á nánast hverjum einasta fréttamannafundi Grænhöfðaeyja á HM í sumar.

„Vonandi fær þessi niðurstaða, þar sem Mendes er hreinsaður af ásökunum um nauðgun, jafnmikla athygli fjölmiðla og ásakanir þessarar konu fengu," segir Karl Trotter, lögmaður Mendes.

Mendes er 36 ára og er leikjahæsti landsliðsmaður Grænhöfðaeyja, hann hefur spilað 103 leiki frá því að hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2010. Hann leikur nú með RS Berkane í Marokkó.
Ákærð fyrir að hafa ranglega sakað Mendes um nauðgun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.