06.11.26 - 11:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Algjör synd og leiðinlegt að missa af þessu"

Getur ekki tekið þátt í umspilinu gegn Grikkjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland silaði mjög vel í síðasta landsleikjaglugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Steig upp á öðrum sviðum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fannst hann spila betur með fyrirliðabandið.

Eggert Aron Guðmundsson, sem bar fyrirliðabandið hjá U21 landsliðinu í síðasta landsliðsverkefni, verður ekki með liðinu í umspilsleikjum gegn Grikkjum. U21 landsliðið spilar þar um sæti á EM næsta sumar.
Eggert tognaði á kálfa um síðustu helgi með félagsliði sínu Brann og spilar ekki aftur fyrr en í fyrsta lagi í lok mánaðar. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

TENGT EFNI
U21 hópurinn sem mætir Grikkjum um sæti á EM - Fyrirliðinn ekki með
„Ég er ekki að fara spila fótbolta næstu 4-6 vikurnar. Ég mun vonandi ná lokahluta tímabilsins með Brann. Þetta var 2. stigs tognun í kálfanum, var búinn að vera pínu slæmur í aðdraganda leiksins um síðustu helgi, verið mikið álag og þetta fylgir þessu. Ég lenti svo í því að fá í kálfann í byrjun leiks," segir Eggert Aron.
„Já, þetta er svekkjandi tímapunktur. Ég var búinn að horfa dálítið í þetta verkefni sem er núna framundan og við búnir að vinna lengi að þessu markmiði. Það er algjör synd og leiðinlegt að missa af þessu, en það verður bara gaman að sjá strákana keppa við Grikkina."
„Ég var svo sem ekkert búinn að sjá neitt af Grikkjunum, en var búinn að sjá liðið þeirra og gaman að sjá að þeir eru að gera vel. Ég held að þetta verði hörkuleikir."
Íslenska liðið fékk sjö stig úr síðustu þremur leikjum undankeppninnar og tryggði sér með því sæti í umspilinu. Fannstu að það var góður andi og góður taktur?
„Já, mjög. Þetta hefur alltaf verið þéttur og skemmtilegur hópur. Þótt það séu alltaf að koma einhverjir nýir inn þá hafa þeir komið með skemmtileg element í hópinn. Þetta eru frábærir strákar og þetta er mjög gott fótboltalið sem gaman er að vera hluti af. Ég býst við því að ég hitti aðeins á þá í næstu viku."
Eggert var í hlutverki fyrirliða í síðasta verkefni og var það í fyrsta sinn í U21 landsliðinu sem hann er í því hlutverki.
„Það er mjög gaman að fá þann heiður að leiða liðið, líka svona gott lið eins og við erum. Það er frekar auðvelt að vera fyrirliði liðsins. Ég steig upp á sviðum sem ég hafði ekki farið á áður, annars var þetta frekar svipað. Mér fannst ég jafnvel spila betur með því að fá bandið, þú tekur meira pláss. Þetta var mjög gaman og ég var ánægður að vera fyrirliði liðsins."
Eggert segir að það verði gaman að fylgjast með strákunum í umspilinu.
„Ég held það verði ekki erfitt, ég mæti á leikinn á fimmtudaginn og verð eitthvað í kringum liðið. Það verður mjög spennandi að sjá strákana. Það kemur maður í manns stað, við höfum sýnt það. Mér finnst hópurinn og liðið líta mjög vel út," segir Eggert sem bindur vonir við sigur Íslands í umspilinu.
Ef Ísland vinnur tveggja leikja einvígi gegn Grikkjum fer liðið á EM næsta sumar. Fyrri leikurinn gegn Grikkjum fer fram á Þróttarvelli næsta fimmtudag og seinni leikurinn verður spilaður ytra annan þriðjudag.