Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. janúar 2023 17:13
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Daði byrjaði gegn toppliðinu
Mynd: Getty Images
Mynd: Honved

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Bolton og spilaði fyrstu 80 mínúturnar í markalausu jafntefli gegn toppliði Plymouth í ensku C-deildinni í dag.


Heimamenn í Bolton voru sterkari aðilinn stærsta hluta leiksins en tókst þó ekki að skora gegn sterkum andstæðingum sínum.

Bolton er í umspilssæti sem stendur, með 41 stig eftir 25 umferðir. Plymouth vermir toppsætið með 57 stig.

Bolton 0 - 0 Plymouth

Viðar Ari Jónsson spilaði þá fyrri hálfleikinn í æfingaleik með ungverska félaginu Honved. Honved kíkti í heimsókn til Osijek í Króatíu og skóp flottan 1-2 sigur eftir að hafa leitt 0-1 í leikhlé.

Hinn 28 ára gamli Viðar Ari er að leika stórt hlutverk á sínu öðru ári í ungverska boltanum.

Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby lögðu þá Hvidovre að velli í æfingaleik.  

Osijek 1 - 2 Honved

Lyngby 3 - 2 Hvidovre

Leverkusen 2 - 1 Venezia


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner