Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. apríl 2021 17:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Willum átti góðan leik í bikarsigri - Ömmi ekki í hóp í bikarnum
Willum á A-landsliðsæfingu í síðustu viku
Willum á A-landsliðsæfingu í síðustu viku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BATE vann í dag 2-3 útisigur á Vitebsk í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum bikarsins í Hvíta-Rússlandi.

Willum Þór Willumsson var ekki í leikmannahópi BATE á sunnudag en var kominn í byrjunarliðið í dag og lék allan leikinn og átti góðan leik. Hann átti þátt í tveimur mörkum gestanna.

Í undanúrslitum getur BATE mætt Zhodino, Isloch eða ríkjandi deildarmeisturum í Shakhtyor Soligorsk. BATE er ríkjandi bikarmeistari.

Í gríska bikarnum var Ögmundur Kristinsson ekki í leikmannahópnum þegar Olympiakos gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Giannina í fyrri leik liðanna í undanúrslitum.

Ögmundur hafði fyrir leikinn í dag spilaði þrjá af síðustu fjórum bikarleikjum Olympiakos. Seinni leikur liðanna er eftir þrjár vikur.
Athugasemdir
banner