Fotbolti.net
07.06.22 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Umspilshetjan Samba á förum frá Nottingham

Umspilshetjan Samba á förum frá Nottingham
Canon

Mynd: EPA

The Athletic greinir frá því að markvörðurinn Brice Samba vilji fara frá Nottingham Forest í sumar.

Samba, 28 ára, hefur verið aðalmarkvörður Nottingham síðustu þrjú ár og á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Samba, sem var hetja Nottingham í úrslitakeppni umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni, er ekki sáttur með samninginn sem Nottingham bauð honum eftir að úrvalsdeildarsætið var tryggt.

Hann hefur því greint félaginu frá því að hann ætli ekki að skrifa undir nýjan samning og vilji helst vera seldur í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.