Paul Barber, framkvæmdastjóri Brighton, hefur staðfest að félagið hafi hafnað öðru tilboði Tottenham í varnarmanninn Jan Paul van Hecke.
Tottenham vill gjarnan fá hollenska varnarmanninn í sínar raðir en Van Hecke vann með Robert de Zerbi hjá Brighton á sínum tíma.
Tottenham vill gjarnan fá hollenska varnarmanninn í sínar raðir en Van Hecke vann með Robert de Zerbi hjá Brighton á sínum tíma.
„Það er alltaf mikill áhugi á okkar bestu leikmönnum. Við höfum hafnað tilboði frá Tottenham, reyndar tveimur," sagði Barber.
„Þetta verður að vera rétt fyrir okkur og leikmanninn. Við verðum að vera í þeirri stöðu til að taka bestu ákvörðunina sem hentar okkar hugmyndafræði. Líka til að styðja við bakið á Hurzeler því það er risastórt tímabil framundan fyrir hann."



