Fotbolti.net
28.07.26 - 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Auðveld ákvörðun að fara norður - „Örugglega erfiðast fyrir mömmu"

Lék sinn fyrsta leik fyrir Þór í gær.

Lék sinn fyrsta leik fyrir Þór í gær.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þorri Ingólfsson gekk í raðir Þórs á láni frá Víkingi í síðustu viki. Þorri er efnilegur sóknarmaður sem spilaði mjög vel á undirbúningstímabilinu hjá Víkingi og fékk lof fyrir sína frammistöðu.

Hann kom inn á sem varamaður í leiknum gegn KA í gær í sínum fyrsta leik fyrir Þór. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin.
Víkingur lánar Þorra í Þór (Staðfest)
TENGT EFNI

Víkingur lánar Þorra í Þór (Staðfest)

„Aðdragandinn að því að fara í Þór var í raun mjög stuttur, ég vissi að það væri einhver áhugi áður. Ég upplifði þetta sem möguleika á þriðjudeginum, miðvikudagurinn fór í símtöl á samninga og svo var ég farinn fyrir hádegi á fimmtudaginn. Þetta gerðist allt mjög hratt," segir Þorri sem er fæddur árið 2009.

Hann þekkir aðeins til leikmanna hjá Þór því hann hefur spilað með þeim Sverri Páli Ingasyni, Einari Frey Halldórssyni, Ásbirni Líndal Arnarssyni og Kristófer Kató Friðrikssyni í yngri landsliðunum.

„Það sem heillaði mest var meiri spilatími og tækifæri. Markmiðið mitt hérna er bara að spila sem mest og hjálpa liðinu eins og ég get."

„Það er svo sem engin tenging við Akureyri, þekki til strákanna úr unglingalandsliðunum, þægilegt að þekkja einhverja til að byrja með, og er svo að kynnast liðinu. Þetta eru toppmenn, það er búið að taka mjög vel á móti mér og ég þakka Þórsurum fyrir það."


Varstu svekktur með takmörkuð tækifæri hjá Víkingi framan af sumri?

„Ég hefði kannski viljað spila aðeins meira, maður vill það alltaf. Þetta er bara ógeðslega sterkur og breiður hópur, forréttindi að fá að æfa með þessum gaurum, þeir eru rugl góðir í bolta."

Eins og Þorri segir var hann meðvitaður um áhuga frá Þór áður en af skiptunum varð, en hans fyrsti og eini leikur með Víkingi í sumar var á móti Þór fyrir rúmri viku síðan. Þá var hann í byrjunarliði Víkings og lék á vinstri kantinum.

„Ég hafði ekki hugmynd um að ég væri á leiðinni í Þór þá, en vissi af einhverjum áhuga," segir Þorri.

Hvernig var að koma inn á gegn KA í gær?

„Að koma inn á gegn KA var sturlað! Stuðningsmennirnir á fullu og rosalegt „tension" inni á vellinum."

„Ég kom inn á í einhvers konar 'tíu' hlutverki með þau skilaboð að koma inn einu marki, það tókst því miður ekki. Ég lít á mig sem leikmann sem getur spilað í öllum sóknar stöðunum."


Hefur eitthvað komið þér á óvart á Akureyri fyrstu dagana?

„Það kemur smá á óvart að það er einhver smá sveitafílingur yfir þessu, mér finnst allir þekkja alla. Ég hélt þetta yrði bara eins og í bænum enda býr hellingur af fólki hérna. Annars finnst mér geggjað að vera hérna."

Var ekkert hik að pakka í töskur og flytja norður?

„Það var í rauninni ekkert hik hjá mér, fannst þetta mjög spennandi og auðveld ákvörðun. Góð reynsla að búa einn, þarf að huga að ýmsu og svona. Þetta var örugglega erfiðast fyrir mömmu," segir Þorri og hlær. „En ég er mjög spenntur fyrir næstu mánuðum," segir Þorri svo.

Var móðir þín ekki til í að sleppa takinu?

„Nei ekkert þannig, smá að ofhugsa þetta bara og var kannski orðin pínu pirrandi. Hún var að nefna allt sem þyrfti að hafa í huga trekk í trekk," segir Þorri á léttu nótunum.

Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Breiðablik eftir viku.
Samherjar úr unglingalandsliðunum, Sverrir Páll og Þorri, komu inn á hjá Þór í gær.

Samherjar úr unglingalandsliðunum, Sverrir Páll og Þorri, komu inn á hjá Þór í gær.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

'Það kemur smá á óvart að það er einhver smá sveitafílingur yfir þessu, mér finnst allir þekkja alla'

'Það kemur smá á óvart að það er einhver smá sveitafílingur yfir þessu, mér finnst allir þekkja alla'

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

'Þetta eru toppmenn, það er búið að taka mjög vel á móti mér og ég þakka Þórsurum fyrir það.'

'Þetta eru toppmenn, það er búið að taka mjög vel á móti mér og ég þakka Þórsurum fyrir það.'

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Áttu fínustu innkomu inn í liðið.

Áttu fínustu innkomu inn í liðið.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Einar Freyr og Þorri í baráttunni í leik Þórs og Víkings.

Einar Freyr og Þorri í baráttunni í leik Þórs og Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.