Fotbolti.net
28.07.26 - 12:06
Innkastið

Geta sagt upp samningnum í haust - „Átti að rétta skútuna við“

Samningur Jóns er svokallaður 1+1 samningur.

Samningur Jóns er svokallaður 1+1 samningur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan fékk skell uppi á Skipaskaga síðastliðinn sunnudag. Leikar enduðu 5-1 fyrir ÍA og heldur slæmt gengi Stjörnunnar í deildinni áfram.

Liðið hefur fengið á sig tíu mörk í síðustu tveimur leikjum. Liðið situr í 10. sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
„Ég er alltaf að bíða eftir að þetta lið hrökkvi í gang. En hversu lengi má ég bíða?,“ sagði Tómas Þór Þórðarson í Innkastinu.

Þó svo að gengi Stjörnunnar í deildinni hafi ekki verið upp á marga fiska síðustu misseri hefur liðið þó komist áfram í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Liðið leiðir einvígið gegn finnska liðinu Ilves 1-0. „Það eru samt sem áður ekkert stórmerkilegar frammistöður. Það er ekki mikið að frétta þarna,“ sagði Valur Páll Eiríksson.

Leikmenn gráti næst eftir brottrekstur Jökuls
Því næst var rætt um þá ákvörðun Stjörnunnar að ráðast í þjálfarabreytingar og viðbrögð leikmanna við brotthvarfi Jökuls.

Það höfðu gengið sögur um að leikmenn hefðu nánast tárast og var velt því upp hvort Jón Þór hefði hafið störf í ákveðinni brekku gagnvart leikmannahópnum.

Tómas Þór benti þó á að liðið hefði ekki spilað eins og það væri að berjast fyrir þjálfarann sinn og að breytingarnar hefðu verið óumflýjanlegar.

Gluggi fyrir endurskoðun
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net að þá er samningur Jóns Þórs 1+1 samningur en ekki fastur tveggja ára samningur eins og áður var greint frá.

Stjarnan hefur því glugga eftir tímabil og geta sagt upp samningi Jóns Þórs í haust ef félagið vill endurskoða þjálfaramálin.

„Er það ekki eina rétta í stöðunni. Ráðningin á Jóni átti að vera til að rétta skútuna við, einfalda hlutina og koma einhverri gleði inn í þetta,“ sagði Tómas Þór.

Undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar hefur liðið aðeins unnið einn deildarleik, gert tvö jafntefli og tapað þremur leikjum.
Leiða einvígið gegn finnska liðinu 1-0.

Leiða einvígið gegn finnska liðinu 1-0.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jökull var látinn taka poka sinn í byrjun júní.

Jökull var látinn taka poka sinn í byrjun júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveimur stigum frá fallsæti.

Tveimur stigum frá fallsæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.