Fotbolti.net
28.07.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Chicharito aftur til Bandaríkjanna (Staðfest)

Chicharito aftur til Bandaríkjanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Atletico Dallas

Mexíkóski sóknarmaðurinn Javier Hernandez, betur þekktur sem Chicharito, skrifaði sig í sögubækur Atletico Dallas þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn til að semja við félagið.
Chicharito lék meðal annars með Manchester United og Real Madrid fyrr á ferlinum en var síðast á mála hjá Guadalajara í heimalandinu.

Hann raðaði inn mörkum fyrir Los Angeles Galaxy á árunum 2020 til 2023 og líkaði greinilega lífið í Bandaríkjunum. Chicharito snýr aftur á völlinn á næsta ári þegar Atletico Dallas hefur keppni í USL-deildinni.

Félagið var stofnað árið 2024 en tekur þátt í deildarkeppni í fyrsta sinn á næsta tímabili.

Miklar breytingar eru fram undan í bandaríska fótboltanum. MLS er nú eina deildin í Bandaríkjunum sem flokkast sem atvinnumannadeild á efsta stigi en USL hyggst setja á laggirnar nýja deild í sama styrkleikaflokki árið 2028 undir nafninu USL Premier.

Hún verður efsta deildin í samtengdu þriggja deilda kerfi og það fyrsta í bandarískum atvinnumannafótbolta þar sem lið geta bæði farið upp og fallið niður um deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.