28.07.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern kaupir miðvörð frá félagi Harðar (Staðfest)

Mynd: Bayern München

Mynd: Bayern München
Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa fest kaup á gríska varnarmanninum Kostas Karadrikas frá Atromitos fyrir 1,5 milljónir evra.
Karadrikas er 17 ára gamall réttfættur miðvörður sem hvorki æfði né spilaði með aðalliði gríska félagsins.
Hann fór tvívegis til reynslu hjá Bayern München í vor og heillaði þjálfara félagsins nægilega mikið til að þýska stórveldið ákvað að kaupa hann.
Samkvæmt Bayern mun Karadrikas æfa og spila með unglinga- og varaliðum félagsins til að byrja með.
Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning en Atromitos fær 15 prósent af söluverði hans verði hann seldur síðar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon gekk til liðs við Atromitos á frjálsri sölu á dögunum eftir að samningur hans við Levadiakos rann út. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Aþenuliðið.
Samúel Kári Friðjónsson og Viðar Örn Kjartansson hafa einnig verið á mála hjá Atromitos.

Bayern have signed Greek centre-back Konstantinos Karandrikas (17) from from Atromitos FC on a long-term contract for the Campus. He will play for the U19s this season ?????????? pic.twitter.com/9RXqtl2l2p
— Bayern & Die Mannschaft (@iMiaSanMia_en) July 27, 2026