Myndband: Akureyrarslagurinn á nýjum velli - Svona verður þetta í kvöld

Hér verður spilað í fyrsta sinn í efstu deild í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Hér, við Þingvallastræti, fara áhorfendur sem eiga miða í stúku inn á svæðið. Stuðningsmenn KA sem eiga miða í stæði fara inn á svæðið vestanmegin, hjá Nettó.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Hér, við Lundaskóla, fara stuðningsmenn Þórs inn á svæðið.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Hér verður spilað í fyrsta sinn í efstu deild í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Liðin eru bæði í fallbaráttu og þurfa nauðsynlega á þremur stigum að halda í kvöld.
Búist er við um 2000 áhorfendum á leikinn og fengu Þórsarar 400 miða til að selja til sinna stuðningsmanna. Sólin hefur skinið skært á Akureyri í dag og er spáð um 10 gráðu hita í kvöld. KA hafði betur í fyrri leik liðanna, sá leikur endaði með 0-1 sigri þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.

Álitsgjafar spá í Akureyrarslaginn - Verður þá með 200% fleiri mörk en Djuric
Fótbolti.net kannaði aðstæður á svæðinu í dag og í spilaranum efst má sjá leiðina sem leikmenn fara úr búningsklefum og inn á völlinn. Búningsklefarnir sem verða við nýja völlinn eru ekki tilbúnir og því ganga leikmenn úr búningsklefunum sem eru í KA heimilinu, með fram gamla vellinum, undir nýju stúkuna og þannig inn á nýja völlinn. Það tekur um mínútu að komast úr klefanum og á völlinn og líklegt að hálfleikurinn verði því rétt rúmlega korter.
Á meðfylgjandi myndum má svo sjá hvar stuðningsmenn Þórs verða. Þeir verða í stæðum fyrir aftan syðra markið á vellinum. Stuðningsmenn KA verða í í sætum í stúkunni og í stæðum á langhliðinni beint á móti stúkunni.
Um klukkan 16:00 er stefnt að því að loka Dalsbrautinni við KA heimilið eins og þekkist í kringum N1 mótið. Sama má segja um aðra akreinina í Þingvallastræti við KA svæðið.

Hér, við Þingvallastræti, fara áhorfendur sem eiga miða í stúku inn á svæðið. Stuðningsmenn KA sem eiga miða í stæði fara inn á svæðið vestanmegin, hjá Nettó.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Hér, við Lundaskóla, fara stuðningsmenn Þórs inn á svæðið.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Líkleg byrjunarlið í Akureyrarslagnum - Fjórir í banni og enginn Aron Einar

Hin hliðin - Markús Máni Pétursson (KA)

Hin hliðin - Einar Freyr Halldórsson (Þór)
Besta karla

Hér fyrir aftan syðra markið munu stuðningsmenn Þórs standa.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Stúkan við nýja völlinn.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Á vesturhliðinni verða stuðningsmenn KA í stæðum.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Varamannabekkirnir eru fyrir framan stúkuna.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Þarna, fyrir aftan markið, verða stuðningsmenn Þórs.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Í gámnum verður Gummi Ben en hann lýsir leiknum á Sýn Sport.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Í Hyrnuboxinu verða blaðamenn.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Vallarklukkan.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
