Fotbolti.net
27.07.26 - 19:41
Brynjar Ingi Erluson

Tómas Bjarki í Val (Staðfest)

Tómas Bjarki í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Valur hefur samið við miðjumanninn Tómas Bjarka Jónsson en hann kemur til félagsins frá Njarðvík eftir tímabilið. Hann gerir samning til 2029.
Tómas er 22 ára gamall og uppalinn hjá Breiðabliki en hefur borið fyrirliðaband Njarðvíkur undanfarin tvö tímabil.

Hann hefur ekki komið við sögu á þessu tímabili eftir að hafa slitið krossband. Endurhæfingin hefur hins vegar gengið vel og er búist við að hann verði orðinn leikfær þegar hann gengur formlega til liðs við Val að tímabilinu loknu.

„Við hjá Val erum afar ánægð með að hafa náð samningum við Tómas. Hann var eftirsóttur af fleiri félögum en ákvað að velja Hlíðarenda sem næsta áfangastað.“

„Tómas er kraftmikill miðjumaður með sterkan karakter og leiðtogahæfileika sem við teljum að muni nýtast liðinu vel á komandi árum.“

„Við bjóðum Tómas Bjarka hjartanlega velkominn til Vals og hlökkum til að sjá hann í rauðu treyjunni á næsta tímabili,“
segir í tilkynningu Vals.

Tómas á að baki sjö landsleiki með U16- og U17-ára landsliðum Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.