28.07.26 - 09:26
Kári Snorrason
Tilboð í Rodri væntanleg - Leeds að landa Trafford

Samningur Rodri rennur út eftir eitt ár.

Mynd: EPA

Á leið til Leeds.

Mynd: EPA

Joshua Zirkzee.

Mynd: EPA

Suzuki er eftirsóttur.

Leeds er að sækja markvörð, Man City býst við tilboði frá Madríd í Rodri og Zirkzee er líklega að fara til Juventus á láni. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
PSG ætlar ekki að reyna við til spænska miðjumanninn Rodri (30) frá Man City, þrátt fyrir orðróm þess efnis. (Sky Sports)
City gerir þó ráð fyrir að Real Madrid leggi fram tilboð í Rodri, en félagið vonast enn til að hann framlengi samning sinn við félagið. (The Guardian)
Leeds er nálægt því að ganga frá kaupum á enska markverðinum James Trafford (23) frá Manchester City fyrir um 40 milljónir punda. (The Athletic)
Man Utd á í langt komnum viðræðum við Juventus um að lána hollenska framherjann Joshua Zirkzee (25) út tímabilið. Samningurinn myndi innihalda kaupákvæði upp á 30 milljónir punda. (The Sun)
PSG hefur áhuga á japanska markverðinum Zion Suzuki (23), leikmanni Parma. Suzuki hefur einnig verið orðaður við Aston Villa og Juventus. (Sky Sport Italia)
Crystal Palace hefur náð samkomulagi um persónuleg kjör við franska miðvörðinn Raphael Le Guen (19), leikmann Brest. (L'Équipe)
Umboðsmenn Ibrahim Mbaye (18), sóknarmanns PSG, hafa boðið Liverpool og Man City að semja um leikmanninn eftir að ljóst varð að hann mun ekki ganga til liðs við Aston Villa í sumar. (Teamtalk)
Real Madrid hefur lagt fram annað tilboð í Yan Diomande hjá RB Leipzig sem er á bilinu 94 til 98 milljónir punda. Þýska félagið vill þó fá meira fyrir Fílabeinsstrendinginn. (Sky Sport Þýskalandi)
Sevilla er tilbúið að selja svissneska kantmanninn Ruben Vargas fyrir 20 milljónir evra. Brighton, Newcastle og Aston Villa eru meðal ensku félaganna sem hafa áhuga á hinum 27 ára leikmanni. (Mundo Deportivo)
Sunderland hefur náð samkomulagi við Dayann Methalie (20), vinstri bakvörð Toulouse og U21 árs landsliðs Frakklands. (RMC Sport)
Ipswich hefur áhuga á serbneska landsliðsmanninum Sasa Lukic (29), leikmanni Fulham. Serbinn er einn af nokkrum leikmönnum sem félagið skoðar til að styrkja miðjuna í sumar. (Sky Sports)