Fotbolti.net
28.07.26 - 10:00
Kári Snorrason

Óþarfi að heyra í hinum Króatíuförunum - „Hjartað og hugurinn hafa alltaf leitað út“

Kominn til Króatíu.

Kominn til Króatíu.

Canon

Mynd: Slaven Belupo

Arnór Gauti Jónsson gekk á dögunum til liðs við króatíska félagið Slaven Belupo frá Breiðabliki.

Þessi 24 ára gamli miðjumaður gekk til liðs við Breiðablik frá Fylki árið 2024. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu það ár og lék alls 91 leik fyrir liðið.

Slaven Belupo leikur í efstu deild en liðið hafnaði í 7. sæti á síðustu leiktíð.

Fótbolti.net sló á þráðinn til Arnórs fyrr í dag sem var að gera sig tilbúinn fyrir fyrstu æfingu sína með liðinu.
Arnór Gauti til Slaven Belupo (Staðfest)
TENGT EFNI

Arnór Gauti til Slaven Belupo (Staðfest)

Stuttur aðdragandi
„Þetta gerðist mjög hratt. Ég fæ að vita af áhuga frá umboðsmanninum rétt fyrir síðustu helgi, fyrir rúmri viku. Hann tilkynnir mér eftir helgi að áhuginn sé raunverulegur og þá fara einhverjar viðræður í gang við Blikana.“

„Skömmu eftir FH-leikinn þá fer þetta svo almennilega af stað. Á fimmtudag ná liðin síðan saman og þeir börðust fyrir því að ég myndi komast sem fyrst út og hingað er ég kominn strax á laugardegi. Það er leikur á föstudaginn, svo þeir vildu að ég myndi koma í undirbúningnum fyrir hann,“
segir Arnór aðspurður um hvernig skiptin komu til.

Markmiðið frá unga aldri
Arnór segir það ekki hafa verið á döfinni að yfirgefa Breiðablik en þegar áhuginn að utan kom þá var erfitt að segja nei.

„Hjartað og hugurinn hafa alltaf leitað út í atvinnumennsku. Það hefur verið markmiðið og draumurinn frá því að maður var þriggja, fjögurra ára gamall. Maður hefur alltaf verið meðvitaður um það ef eitthvað myndi gerast. Á þessum tímapunkti var ég ekki að ýta á eftir neinu slíku.“

„Þetta er búið að vera draumurinn lengi. Svo er það góð gulrót að spila í Sambandsdeildinni eins og maður gerði með Blikunum í fyrra. Þetta er erfitt að því leytinu til að maður var í góðu félagi með geggjuðum liðsfélögum og frábæru þjálfarateymi. Allt geggjaðir náungar. Auðvitað er erfitt að kveðja þetta og fjölskylduna en í sjálfu sér var þetta nokkuð auðveld ákvörðun,“ segir Arnór.

Óþarfi að heyra í Króatíuförunum
Þeir Logi Hrafn Róbertsson, Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson hafa allir farið út til Króatíu á síðustu tveimur árum en áttu erfitt uppdráttar.

Oliver og Danijel fóru báðir til KA eftir misheppnaða dvöl í Króatíu en Logi Hrafn leikur með Varnamö í sænsku Superettunni.

Arnór var spurður hvort gengi íslenskra leikmanna í Króatíu síðustu ár hefði verið eitthvað sem hann hefði velt mikið fyrir sér við ákvarðanatökuna.

„Stutta svarið við því er nei. Auðvitað er maður meðvitaður um þetta og þekkir þessa stráka sem hafa verið í Króatíu síðustu ár. Ég ákvað að láta þetta ekki hafa áhrif á mig. Ég átti gott spjall við þjálfarann og kynnti mér liðið og deildina. Þetta er gott skref fyrir mig á mínum ferli. Þetta er mikill stökkpallur og ég horfði mest í það. “

Heyrðiru í einhverjum af Króatíuförunum áður en þú tókst ákvörðunina?

„Nei, mér datt það alveg í hug. Að heyra í þeim hljóðið og fá þeirra sjónarhorn af þessu. Ég hugsaði svo fljótt út í það ef þeirra álit væri ekki mikið af þessu að þá myndi ég ekki leyfa þeirra skoðun að hafa áhrif á mína ákvarðanatöku.“

„Þannig mér fannst það í raun smá óþarfi að heyra í þeim. Ég var mjög spenntur fyrir þessu – búa í landi með gott veðurfar og með sterka deild. Það heillaði mig mest. Ég kannski tek upp símann og heyri í þeim ef þeir luma á góðum trixum eða ábendingum um lifnaðarhættina hérna. En um ákvarðanatökuna þá sleppti ég því bara alfarið,“
segir Arnór léttur að lokum.
Segir hjólin hafa farið að snúast eftir leikinn gegn FH í síðustu viku.

Segir hjólin hafa farið að snúast eftir leikinn gegn FH í síðustu viku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varð Íslandsmeistari með Blikum 2024.

Varð Íslandsmeistari með Blikum 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Draumurinn frá þriggja, fjögurra ára aldri.“

„Draumurinn frá þriggja, fjögurra ára aldri.“

Canon

Mynd: Slaven Belupo

Danijel Djuric var á mála hjá NK Istra í Króatíu í rúmt ár.

Danijel Djuric var á mála hjá NK Istra í Króatíu í rúmt ár.

Canon

Mynd: NK Istra 1961

Lék 91 leik fyrir Breiðablik.

Lék 91 leik fyrir Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.