Þrefaldur danskur meistari byrjar vel á Íslandi - „KA vildi mig meira en önnur félög"

Átti góðan leik gegn Þór í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Marcel Römer lék með KA í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

André spilaði með Jóan Símun hjá OB í Danmörku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danirnir Christian Greko Jakobsen og André Römer mættust í gær í 12. sinn á ferlinum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er svekkjandi í svona góðri stemningu í grannaslagnum að hafa ekki náð að taka stigin þrjú fyrir stuðningsmennina

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Átti góðan leik gegn Þór í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hann er yngri bróðir Marcel sem lék með KA á síðasta tímabili og spilar nú í dönsku B-deildinni. André hefur spilað tvo leiki með KA; skoraði gegn ÍBV í Vestmannaeyjum og var hér á Fótbolti.net valinn maður leiksins þegar KA tók á móti Þór í nágrannaslag í gær.
Danski miðjumaðurinn ræddi við Fótbolta.net um félagaskiptin og fyrstu dagana á Íslandi.
„Ég hafði verið í viðræðum við önnur félög, en mér leið eins og þau vildu ekki jafnmikið fá mig og KA. Það var mjög mikilvægt fyrir mig og eftir erfitt ár þurfti ég að spila meiri fótbolta og finna að ég væri mikilvægur aftur."
André kom frá Randers þar sem hann byrjaði u.þ.b. einn fjórða af leikjum liðsins í dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Ræddi hann við bróður sinn áður en hann tók ákvörðun?
„Auðvitað talaði ég við bróður minn og hann hafði bara góða hluti að segja um liðið, þjálfarana og bæinn. Það gerði ákvörðunina að koma hingað auðveldari. Við erum áfram í sambandi og ég er að spyrja hann út í hluti sem ég þarf að sjá og prófa."
Hvernig líður þér með byrjunina, fyrstu tvo leikina?
„Auðvitað hafði ég vonast eftir fleiri stigum. Við vorum ekki upp á okkar besta á móti í fyrsta leik, komumst samt tvisvar yfir og vorum manni fleiri í lokin. Við hefðum átt að vinna þann leik."
„Það voru enn meiri vonbrigði í gær. Við spiluðum góðan fyrri hálfleik og áttum að mínu mati að vera yfir í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var ekki eins góður en mér leið samt eins og við hefðum fengið færin til að vinna leikinn."
„Það er svekkjandi í svona góðri stemningu í grannaslagnum að hafa ekki náð að taka stigin þrjú fyrir stuðningsmennina."
Hvernig líður þér með þína frammistöðu?
„Ég er enn að reyna komast í mitt besta leikform, en þetta er að verða betra og með fleiri leikjum er ég viss um að frammistaðan verði enn betri betri."
Auðvelt að komast inn í hópinn
Hvernig eru fyrstu kynnin af Akureyri og Íslandi?
„Þetta er fallegur lítill bær. Það er aðeins kaldara en í Danmörku, en ekki svo mikill munur. Félagið hugsar vel um mig og það hefur verið auðvelt að komast inn í hópinn, strákarnir eru opnir og mér hefur liðið eins og hluti af liðinu alveg frá því ég kom."
Spilað með nokkrum Íslendingum
Hjá KA hittir André fyrir Færeyinginn Jóan Símun Edmundsson en þeir spiluðu saman hjá OB í Danmörku fyrir átta árum síðan. Hjá Midtjylland spilaði hann nokkuð nýlega með Elíasi Rafni Ólafssyni og Mikael Anderson en fyrir þrettán árum lék hann með Eyjólfi Héðinssyni. Hjá Elfsborg lék hann með Hákoni Rafni Valdimarssyni og Sveini Aroni Guðjohnsen.
Stefnir á topp sex
André var spurður út í markmiðið með KA. Hann skrifaði samning við félagið sem gildir út næsta tímabili.
„Aðalmarkmiðið er að ná topp sex bæði í ár og á næsta tímabili, en svo það gerist þurfum við að fara vinna leiki."
„Á þessu ári er ég líka að byrja að taka þjálfaragráðurnar og vonast til þess að reynsla mín hjálpi liðinu að ná sínum markmiðum," segir André.

Marcel Römer lék með KA í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

André spilaði með Jóan Símun hjá OB í Danmörku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danirnir Christian Greko Jakobsen og André Römer mættust í gær í 12. sinn á ferlinum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er svekkjandi í svona góðri stemningu í grannaslagnum að hafa ekki náð að taka stigin þrjú fyrir stuðningsmennina

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
