Fotbolti.net
28.07.26 - 09:45
Kári Snorrason

Zidane tekinn við Frökkum (Staðfest)

Skoraði 31 mark í 108 landsleikjum fyrir Frakkland.

Skoraði 31 mark í 108 landsleikjum fyrir Frakkland.

Canon

Mynd: EPA

Zinedine Zidane var í morgun kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Frakklands.

Hann tekur við liðinu af Didier Deschamps, sem hætti eftir fjórtán ár í starfi að heimsmeistaramótinu loknu.

Zidane skrifaði undir fjögurra ára samning og verður því við stjórnvölinn fram yfir HM 2030.
Þessi 54 ára gamli Frakki hefur ekki þjálfað síðan hann lét af störfum hjá Real Madrid fyrir fimm árum.

Sem þjálfari spænska liðsins vann hann Meistaradeildina í þrígang og LaLiga tvívegis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.