Fréttamaður Sky lætur Romano heyra það - „Varst fyrirmynd mín en ekki lengur“

Fabrizio Romano er umdeildur

Mynd: Fabrizio Romano - Facebook

Florian Plettenberg hraunaði yfir Romano

Mynd: X

Plettenberg segir færslu Romano um Klopp hafa verið byggða á líkindum

Mynd: EPA

Romano er búinn að setja „Here we go!“ á Diomande en Plettenberg segir ekkert samkomulag í höfn

Mynd: EPA

Romano skrifaði óhóflega mikið um andlát Jota

Mynd: EPA

Romano hefur oft verið gagnrýndur fyrir að flýta sér of mikið, en hann sagði frá því að Christian Atsu hafi fundist á lífi eftir jarðskjálfta í Tyrklandi. Það reyndist rangt.

Mynd: EPA

Plettenberg kastaði steinum úr glerhúsi þegar hann talaði um Marc Guehi, en báðir sögðu að hann yrði leikmaður Liverpool

Mynd: EPA

Fabrizio Romano er umdeildur

Mynd: Fabrizio Romano - Facebook
Samhliða vinsældunum hefur gagnrýni á vinnubrögð hans orðið háværari. Þar koma meðal annars við sögu náin tengsl Romano við félög, umboðsmenn og aðra sem eiga hagsmuna að gæta á leikmannamarkaðnum. Sumir telja hann ekki aðeins flytja fréttir heldur einnig hjálpa ákveðnum aðilum að stýra umræðunni.
Romano hefur meðal annars verið sakaður um ímyndarþvott fyrir Mason Greenwood eftir mikinn fjölda jákvæðra færslna um leikmanninn. Greenwood var ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn kærustu sinni en málið var síðar látið niður falla.
Einnig hefur verið fjallað um að Romano þiggi greiðslur fyrir kynningarefni og færslur. Gott samband hans við valdamikla umboðsmenn skilar honum ótal fréttum en vekur líka spurningar. Það er ekki alltaf auðvelt að sjá hvar fréttamennskunni sleppir og almannatengslin taka við.
Romano birtir gríðarlegt magn af efni á hverjum degi. Fleiri færslur þýða meiri lestur og meiri tekjur. Í slíku kapphlaupi er auðvelt að fórna nákvæmninni fyrir hraðann.
Plettenberg, fréttamaður Sky í Þýskalandi, leit eitt sinn mikið upp til Romano. Það er greinilega liðin tíð.
Upp úr sauð á X þegar Romano fullyrti með sínu fræga „Here we go!“ að Yan Diomande væri á leið frá RB Leipzig til Real Madrid fyrir meira en 100 milljónir evra.
Plettenberg sagði ekkert endanlegt samkomulag liggja fyrir og benti á að hvorki kaupverð né aðrir mikilvægir þættir hefðu verið frágengnir. Þegar notandi spurði hann hvort það gæti staðist þrátt fyrir yfirlýsingu Romano blandaði Ítalinn sér í umræðuna.
„Hafðu ekki áhyggjur. Diomande fer til Real Madrid alveg eins og Klopp tók við þýska landsliðinu.“
„Spurðu frekar um falsfréttirnar þess efnis að Manchester City hefði boðið 100 milljónir evra í Diomande. Félagið hafði þá verið úr leik í nokkra daga og viðræður Real Madrid við Leipzig voru langt komnar. Þeir eru duglegir að tala um aðra, þó ekki nægilega duglegir til að merkja mig í færslunum. Kannið eigin fréttir áður en þið talið um mig,“ skrifaði Romano.
Plettenberg tók ásökuninni um falsfréttir illa og svaraði fullum hálsi.
„Vá. Þú fórst yfir strikið með því að saka okkur um falsfréttir vegna tilboðs Manchester City sem ég greindi aldrei frá.“
„Ég ætlaði ekki að nefna þetta en færslan þín um Klopp var fáránleg og sýndi öllum blaðamönnum sem afla raunverulegra frétta vanvirðingu. Þú birtir „Here we go!“ þegar allir vissu hvert stefndi, þótt samningurinn væri ekki undirritaður fyrr en tæpri viku síðar. Hver sem er hefði getað birt þessa frétt enda augljóst að Klopp yrði næsti landsliðsþjálfari. Færslan þín byggðist á líkum en ekki frágengnu samkomulagi. Ég hélt í alvöru að þú sýndir meiri sóma en þetta.“
„Þú ættir að hafa hægt um þig á meðan þú eyðir röngum „Here we go“-færslum og birtir úrslit nokkrum mínútum eftir lokaflautið til að þóknast algríminu. Síðan eyðir þú færslunni fimm mínútum síðar þegar í ljós kemur að Neymar skoraði. Það sama gildir um Instagram-færslurnar þar sem þú vísar ekki í upprunalega heimild.“
„Þú gerir þitt og við gerum okkar. Að saka aðra um lygar er þó ansi kaldhæðnislegt þegar það kemur frá manni í þinni stöðu. Góða nótt,“ sagði Plettenberg.
Romano lét ekki þar við sitja. Hann rifjaði upp að Plettenberg hefði sent sér skilaboð fyrir nokkrum árum og spurt hvernig hann gæti fjölgað fylgjendum sínum.
„Þú byrjar á að ráðast á mig en segir síðan að ég hafi farið yfir strikið. Það er alla vega gott að þú ert búinn að læra að merkja mig í færslunum. Kannski ætti ég að birta skilaboðin þar sem þú spurðir mig hvernig þú gætir fengið fleiri fylgjendur og sagðir starf mitt vera þér innblástur. Nú ætlar þú að kenna öðrum hvernig þetta er gert.“
„Á meðan geturðu spurst fyrir á Anfield um treyju númer tíu. Mundu bara að þú hófst þennan sirkus með færslunni um Diomande. Hann mun hundrað prósent fara til Real Madrid. Þetta er síðasta svar mitt til þín. Njóttu,“ skrifaði Romano.
Þarna vísaði Romano til fréttar Plettenberg um að Florian Wirtz hefði farið fram á að fá treyju númer tíu þegar hann gekk til liðs við Liverpool. Wirtz neitaði því síðar sjálfur.
Plettenberg hefur því ekki alltaf hitt naglann á höfuðið og Romano var fljótur að minna hann á það. Þjóðverjinn sagði samt álit sitt á Romano hafa breyst mikið.
„Þú varst fyrirmynd margra, þar á meðal mín, en því miður er það ekki lengur þannig. Ég er bara þakklátur fyrir að geta nú verið fyrirmynd annarra,“ sagði Plettenberg.
Orðaskiptin héldu áfram og Marc Guehi-málið frá síðasta sumri var einnig dregið inn í umræðuna.
Plettenberg skaut á Romano fyrir að hafa sagt Guehi vera á leið til Liverpool áður en Crystal Palace stöðvaði félagaskiptin á síðustu stundu. Romano svaraði því til að Plettenberg hefði sjálfur sagt samkomulagið frágengið á svipuðum tíma.
Það má hafa gaman af þessu rifrildi en það segir líka sitt um félagaskiptafréttir nútímans. Allir vilja vera fyrstir og ná sem mestum viðbrögðum áður en næsti maður birtir sömu frétt.
Romano hefur áður fengið mikla gagnrýni fyrir magn og eðli færslna sinna. Eftir andlát Diogo Jota var hann til að mynda sakaður um að birta óhóflega margar færslur um málið til að kalla fram viðbrögð á samfélagsmiðlum.
Alvarlegra dæmi kom árið 2023 þegar Romano greindi frá því að Ganamaðurinn Christian Atsu hefði fundist á lífi í rústunum eftir jarðskjálftann í Tyrklandi. Hann sagði Atsu hafa verið fluttan á sjúkrahús með meiðsli á fæti og öndunarerfiðleika.
Upplýsingarnar reyndust rangar og Atsu fannst síðar látinn undir rústunum. Romano var ekki sá eini sem birti fréttina en maður með jafn stóran fylgjendahóp verður að fara sérstaklega varlega með slíkar upplýsingar. Færslan er enn aðgengileg á Facebook-síðu hans.
Romano er gríðarlega vel tengdur og hefur gjörbreytt því hvernig stuðningsmenn fylgjast með félagaskiptamarkaðnum. Hann flytur mikið magn réttra frétta og hefur oftar rétt fyrir sér en flestir aðrir á þessu sviði.
Gagnrýnin á vinnubrögð hans á samt fullan rétt á sér. Tengslin við félög og umboðsmenn eru ein ástæða þess að Romano varð svona stór, en þau eru líka vandamálið. Þegar hann flytur fréttir, kyndir undir sögum og auglýsir leikmenn er stundum erfitt að sjá hvort hann sé að segja frá eða hjálpa einhverjum að koma sínum málum á framfæri.
Romano er löngu orðinn of stór til að þurfa að vera fyrstur með allt. Nú skiptir meira máli að fólk geti treyst því sem hann birtir.

Florian Plettenberg hraunaði yfir Romano

Mynd: X

Plettenberg segir færslu Romano um Klopp hafa verið byggða á líkindum

Mynd: EPA

Romano er búinn að setja „Here we go!“ á Diomande en Plettenberg segir ekkert samkomulag í höfn

Mynd: EPA

Romano skrifaði óhóflega mikið um andlát Jota

Mynd: EPA

Romano hefur oft verið gagnrýndur fyrir að flýta sér of mikið, en hann sagði frá því að Christian Atsu hafi fundist á lífi eftir jarðskjálfta í Tyrklandi. Það reyndist rangt.

Mynd: EPA

Plettenberg kastaði steinum úr glerhúsi þegar hann talaði um Marc Guehi, en báðir sögðu að hann yrði leikmaður Liverpool

Mynd: EPA

