Fotbolti.net
27.07.26 - 22:17
Stefán Marteinn Ólafsson

Ólafur Ingi: Viljum keyra á lið en svo er þetta kannski bara aðeins andlegt

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann öflugan sigur á Eyjamönnum í kvöld þegar lokaleikir 16. umferðar fóru fram.

Eftir markalausan fyrri hálfleik náði Breiðablik inn sigurmarki í þeim seinni og fóru með eins marks sigur á Eikarvellinum í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 ÍBV

„Frekar jafn leikur heilt yfir" sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst við vera pínu passívir í fyrri hálfleik. Mér fannst við ekki mæta til leiks nógu aggressívir, hvorki með né án bolta. Mér fannst pressan ekki nógu öflug, mér fannst við alltaf vera skrefinu á eftir" 

„Á boltann þá áttum við ágætis kafla án þess að ná kannski að brjóta þá algjörlega upp en við eigum svona hálffæri og þetta var svona lala" 

„Seinni hálfleikur byrjar svo betur og við gerum mjög vel í byrjun seinni hálfleiks og fram að marki þá fannst mér við aftur fara velja auðveldu leiðina, spila til baka þegar við getum spilað honum áfram fram á við og hleypum þeim svona aðeins inn í leikinn aftur" 

Í jöfnum leik voru það einstaklinsgæðin sem að skildu á milli.

„Þeir sköpuðu sér svo sem ekki mikið í seinni hálfleik. Þeir fá eitt gott færi í skyndisókn en svo er þetta föstu leikatriðin hjá þeim sem eru sterk"

„Mér fannst við vera með ágætis stjórn á því, mér fannst þeir ekkert kannski meiða okkur eitthvað mikið hérna sérstaklega í seinni hálfleik"

„Við getum ekki farið að líta á klukkuna og verja einhverja forystu. Við verðum bara að halda áfram og gefa í og halda áfram að gera það sem við vorum að gera hérna í byrjun seinni hálfleiks. Þora að spila á milli línana og ekkert vera að hugsa um að við séum komnir yfir og verja eitthvað forskot"

„Við viljum bara keyra á lið en svo er þetta kannski bara aðeins svona andlegt. Menn fara að hugsa að kannski áhættusending og annað og þá svona missum við mómentum-ið en ég var svo sem ekkert mjög óstyrkur þarna á hliðarlínunni" sagði Ólafur Ingi Skúlason. 

Nánar er rætt við Ólaf Inga Skúlason í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV16-816
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.