Fotbolti.net
28.07.26 - 14:22
Kári Snorrason

Fíaskói Ítala lokið - Mancini snýr aftur (Staðfest)

Stýrði liðinu til sigurs á EM 2021.

Stýrði liðinu til sigurs á EM 2021.

Canon

Mynd: EPA

Roberto Mancini er tekinn við sem nýr þjálfari ítalska landsliðsins. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við ítalska sambandið.

Þjálfaraleit Ítala hefur verið sannkölluð þrautaganga. Carlo Ancelotti og Pep Guardiola höfnuðu báðir starfinu og síðan rann ráðning Andrea Pirlo út í sandinn vegna tengsla hans við rússneskt veðmálafyrirtæki.

Giovanni Malago, nýr forseti ítalska sambandsins, tók ákvörðunina eftir pressu frá ítölskum stjórnmálamönnum en Pirlo hafði náð samkomulagi við sambandið.

Við það sagði Paolo Maldini upp störfum hjá ítalska fótboltasambandinu aðeins sextán dögum eftir að hafa verið ráðinn til starfa sem yfirmaður fótboltamála.

Mancini stýrir liðinu í annað sinn en hann var með liðið frá 2018 til 2023 og stýrði hann liðinu til sigurs á EM 2021. Hann var síðast stjóri Al-Sadd í Sádi-Arabíu.

Genarro Gattuso var síðast stjóri Ítalíu en hann sagði af sér eftir að liðinu mistókst að tryggja sig á liðið HM í vor. Ítalíu hefur mistekist að komast á þrjú síðustu heimsmeistaramót.
Sagði upp aðeins sextán dögum eftir að hafa verið ráðinn til starfa.

Sagði upp aðeins sextán dögum eftir að hafa verið ráðinn til starfa.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.