Þorleifur Úlfarsson var hetja Loudoun United í bandaríska USL bikarnum í nótt.
Liðið fékk Richmond Kickers í heimsókn en staðan var markalaus í hálfleik. Þorleifur kom Loudoun yfir með marki á 68. mínútu og skoraði síðan aftur þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.
2-0 urðu lokatölur en Loudoun er með þrjú stig eftir tvær umferðir í bikarnum.
Þorleifur gekk til liðs við Loudoun frá Breiðabliki í byrjun þessa árs. Hann hefur skorað sex mörk í tíu leikjum.
Loudoun gets the job done ????
— Loudoun United Football Club (@LoudounUnitedFC) June 7, 2026
????????? https://t.co/dSmNvE0XA2#LoudAndUnited pic.twitter.com/BjrFfvmSs5




