Fotbolti.net
27.07.26 - 20:09
Brynjar Ingi Erluson

Fullkomin byrjun Freys hjá Rosenborg

Fullkomin byrjun Freys hjá Rosenborg
Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson fer frábærlega af stað með norska liðið Rosenborg en það vann þriðja leikinn í röð undir hans stjórn þegar það pakkaði Fredrikstad saman, 4-0, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Freyr tók við Rosenborg skömmu eftir að honum var sagt upp hjá Brann.

Rosenborg er norskt stórveldi sem hefur verið í lægð undanfarin ár en þessi draumabyrjun undir stjórn Freys gefur stuðningsmönnum ástæðu til að láta sig dreyma um bjartari tíma.

Rosenborg vann fyrstu tvo deildarleikina undir stjórn Freys, 3-0, og fylgdi þeim eftir með 4-0 stórsigri í kvöld. Liðið hefur því unnið alla þrjá leikina og ekki enn fengið á sig mark.

Rosenborg er komið upp í níunda sæti með 18 stig og farið að nálgast liðin sem berjast um Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.