Víkingar í góðu yfirlæti í Ungverjalandi - „Viljum að leikmyndin spegli það sem við höfum gert í sumar“

Víkingur leiðir einvígið með einu marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með sigri í einvíginu tryggja Víkingar sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Munu ekki falla til baka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Strákarnir eru afslappaðir en þegar nær dregur hækkar spennustigið og fiðrildin koma í magann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur leiðir einvígið með einu marki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikurinn á morgun verður í Szombathely í Ungverjalandi vegna átakana í Ísrael. Völlurinn tekur um níu þúsund manns í sæti en búist er við nokkur hundruðum stuðningsmönnum Hapoel frá Ísrael.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, á liðshóteli Víkinga í Ungverjalandi fyrr í dag.
Reynslan kemur sterk inn
Aðeins tvær vikur eru síðan Víkingar voru síðast í Ungverjalandi en þá heimsóttu þeir ungverska meistaraliðið ETO Györ. Víkingar fóru inn í leikinn með eins marks forskot úr fyrri viðureigninni, rétt eins og þeir gera á morgun, og tryggðu sér sæti áfram með jafntefli í Györ.
Sölvi segir líkindi með leikjunum tveimur nema hvað að leikur morgundagsins er stærri.
„Þetta er önnur umferð og því fleiri umferðir sem þú ferð áfram í, því stærra verður þetta. Andinn er svipaður, eins og hann er alltaf. Við erum að fara rólega yfir hlutina. Strákarnir eru afslappaðir en þegar nær dregur hækkar spennustigið og fiðrildin koma í magann, sem er jákvætt.
Þú þarft að vera með spennustigið á réttum stað. Þar kemur reynslan sterk inn, þú nærð að stýra spennustiginu betur,“ segir Sölvi.
Munu ekki falla til baka
Hvernig komiði inn í leikinn?
„Við erum ekki að fara falla eitthvað til baka. Við viljum að leikmyndin spegli það sem við höfum gert í sumar. Við þurfum að vera skynsamir. Við þurfum að velja réttu tímapunktana til að stíga og falla. Þessi smáatriði þurfa að vera í lagi allan leikinn svo að við eigum möguleika,“ segir Sölvi að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Með sigri í einvíginu tryggja Víkingar sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Munu ekki falla til baka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Strákarnir eru afslappaðir en þegar nær dregur hækkar spennustigið og fiðrildin koma í magann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
