07.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Helder Postica kominn til Tottenham (STAÐFEST)
Tottenham hefur keypt portúgalska framherjan Helder Postiga frá Porto fyrir 6,25 milljónir punda sem gætu farið í 8,25 milljónir punda byggt á leikjafjölda leikmannsins og frammistöðu Spurs. Postiga gerði fimm ára samning. Postiga er tvítugur og hefur nýverið verið valinn í Portúgalska landslið. Hann gerði 19 mörk á nýliðnu tímabili fyrir Porto sem hampaði UEFA bikarmeistaratitli. Þess má geta að mörg lið í Evrópu voru á eftir þessum efnilega leikmanni en hann valdi að sjálfsögðu liðið sem hann segist hafa haldið með lengi.
