Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   fös 07. júlí 2017 14:28
Elvar Geir Magnússon
Leikur KR og Fjölnis færður til 27. júlí
KR mætir Fjölni 27. júlí.
KR mætir Fjölni 27. júlí.
Mynd: Fótbolti.net
KSÍ hefur orðið við ósk KR um að færa leik liðsins gegn Fjölni í 10. umferð Pepsi-deildinnar. Leikurinn átti að fara fram á mánudag en hefur verið færður til fimmtudagsins 27. júlí.

KR mætir liði Maccabi Tel Aviv í Ísrael í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn í næstu viku.

Fjölnisleikurinn er færður til að auðvelda ferðalag og undirbúning KR fyrir leikinn í Ísrael.

„Ég held að það væri kærkomið gagnvart íslensku liðunum að gefa þeim svigrúm sem þarf til að ná árangri í þessari keppni," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í gær.

10. umferð Pepsi-deildarinnar hefst í kvöld þegar Íslandsmeistarar FH mæta Víkingi Ólafsvík í Kaplakrika. Þrír leikir verða á sunnudag og einn á mánudag.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner