Fotbolti.net
25.08.26 - 12:45
Innkastið

Setja spurningamerki við að stjórnin hafi tekið fund með leikmönnum

Er leikmannavaldið of mikið í Garðabæ?

Er leikmannavaldið of mikið í Garðabæ?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Innkastinu var að sjálfsögðu rætt um stöðuna í Garðabænum og viðtalið umtalaða sem Gunnlaugur Jónsson tók við Jón Þór Hauksson.

„Jón Þór á greinilega aldrei séns á að gera neitt þarna eftir að hann kemur inn í þetta. Ef það er allt rétt sem hann segir þá er þetta bara algjör skandall sem er í gangi þarna í Garðabænum," segir Valur Gunnarsson.

Jón Þór notaði orðið 'fíaskó' um starfshætti Stjörnunnar og segist hafa fundið að hann væri hreinlega ekki velkominn eftir ráðninguna. Þeim orðum er bæði beint að leikmönnum og starfsmönnum Garðabæjarfélagsins.
Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur
TENGT EFNI

Jón Þór: Þarf illan hug til að búa til svona ljótar sögur

Þeir voru búnir að spila Jökul í burtu
„Mér sýnist player-powerið (leikmannavaldið) vera orðið ansi mikið þarna," segir Tómas Þór Þórðarson en í viðtalinu við Jón Þór kemur fram að einhverjir leikmenn hafi fundað með stjórninni áður en tekin var ákvörðun um að láta hann taka pokann sinn.

„Ég set spurningamerki við það að taka þann fund sem stjórnarmaður, leikmenn komi og ræði við þig," segir Valur en fjallað hefur verið um óánægju innan leikmannahópsins eftir að Jökull Elísabetarson var látinn fara eftir vonbrigðaframmistöðu liðsins.

„Þeir voru búnir að spila Jökul í burtu og voru svo allir með böggum hildar þegar hann fór. Svo var þetta ekki nægilega gott fyrir þá, hvað þá næst?" spyr Tómas Þór.

Í Innkastinu er þá furðað sig á því að Stjarnan hafi enn ekki gefið neitt út um þjálfaramálin eftir að Jón Þór var látinn fara. Fjórir voru skráðir sem þjálfarar á skýrslu í 4-2 sigrinum gegn Þór; Brynjar Kristmundsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Olgeir Sigurgeirsson og Hákon Ernir Haraldsson.

Brynjar sagði við Vísi fyrir helgi að hann og Olgeir myndu stýra liðinu út tímabilið en Garðabæjarfélagið hefur sjálft ekkert gefið út.
Setja spurningamerki við að stjórnin hafi tekið fund með leikmönnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Setja spurningamerki við að stjórnin hafi tekið fund með leikmönnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.