Fotbolti.net
25.08.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þarf að sýna að hann geti haldist heill

Þarf að sýna að hann geti haldist heill
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Lisandro Martínez hjá Manchester United er örlítið óljós. Hann er samningsbundinn út tímabilið og félagið getur framlengt samninginn um ár til viðbótar.

Heimildarmenn talkSPORT segja að United sé tilbúið að framlengja samninginn.

Hins vegar er tilfinningin að ráðamenn hjá United séu á því að Martínez verði að sýna fram á að hann geti haldist heill. Ef hann geri það ekki þá verði hann seldur næsta sumar.
Martínez var keyptur frá Ajax fyrir fjórum árum og hefur misst af næstum 80 úrvalsdeildarleikum vegna meiðsla.

Argentínski varnarmaðurinn verður 29 ára í janúar.

Martínez var á bekknum gegn Hull um liðna helgi og gæti komið inn í byrjunarliðið fyrir heimaleikinn gegn Ipswich á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.