25.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar vonast til að endurheimta tvo öfluga menn fyrir næsta leik

Fred hefur verið frábær fyrir Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tibbling átti frábært tímabil í fyrra en hefur spilað minna eftir að Freyr Sigurðsson tók gott skref í sinni spilamennsku í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred hefur verið frábær fyrir Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fred og Simon Tibbling voru ekki með Fram þegar liðið heimsótti Breiðablik í gær. Kristófer Konráðsson kom inn í liðið og spilaði með þeim Ægi Jarli Jónassyni og Frey Sigurðssyni á miðsvæðinu. Freyr þurfti að fara af velli á 74. mínútu eftir að hafa fengið aðhlynningu.
Fred meiddist í leiknum gegn Stjörnunni í umferðinni á undan en Tibbling hefur verið frá síðan í Þjóðhátíðarleiknum gegn ÍBV. Sænski miðjumaðurinn fékk höfuðhögg í Vestmannaeyjum og hefur ekki spilað síðan.

TENGT EFNI
Rúnar Kristins: Auðvitað er það pirrandi
„Fred og Simon munu byrja að æfa með okkur í vikunni. Vonandi verða þeir heilir fyrir helgi," sagði Rúnar eftir leikinn í gær.
Í viðtalinu ræðir Rúnar einnig um framhaldið og er m.a. spurður út í leik KR og Víkings í næstu umferð. Viðtalið má sjá í spilaranum neðst.
Atli Þór Jónasson er sömuleiðis á meiðslalistanum hjá Fram.
Næsti leikur Fram er heimaleikur gegn KA á sunnudag og eftir tæpar tvær vikur mætir liðið Víkingi í lokaleik fyrir skiptingu.