25.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rooney mjög hrifinn af kaupunum á Baleba

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, er hrifinn af kaupum United á Carlos Baleba sem kemur frá Brighton.
Rooney segir að Baleba muni stórbæta lið United og er ekki sammála þeim sem segja að hann hafi dalað eftir að ekkert úr varð úr því að hann færi til United á síðasta tímabili.
Búist er við því að United klári kaupin á Baleba fyrir 70 milljónir punda og verður hann þriðji miðjumaðurinn sem United kaupir á eftir Youri Tielemans og Andrey Santos. Tielemans og Santos byrjuðu í tapleiknum gegn Hull í 1. umferð.

„Ég er mjög hrifinn af Baleba, ég held að þetta séu mjög góð kaup. Við þurfum annan líkamlega sterkan miðjumann. Ég veit að hann er ekki sá hávaxnasti en hann hleypur völlinn vel, hann er agressífur og vinnur boltann. Það er það sem við þurfum. Hann er mjög góður leikmaður sem mun stórbæta liðið."
„Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta verður með Tielemans, Santos og Kobbie Mainoo en þannig á það vera. Samkeppni um stöður. Ef þú spilar ekki vel, þá spilaru ekki."
„Mér fannst hann ekki týnast. Það gerist ekki svo oft að tækifærið að fara til United kemur upp, svo maður veit ekki hvaða áhrif það hefur. Mér finnst hann topp leikmaður," sagði Rooney í Stick to United with Wayne Rooney hlaðvarpinu.