Fotbolti.net
25.08.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óli Skúla: Fyllum það skarð með okkar leikmönnum

Ágúst Orri og Aron Bjarnason.

Ágúst Orri og Aron Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri Þorsteinsson var í gær kynntur sem nýr leikmaður Excelsior í Hollandi en hann er keyptur frá Breiðabliki. Hann hafði verið lykilmaður í sóknarleik Blika en ljóst er að síðustu níu leiki tímabilsins þurfa Blikar að spila án hans. Fyrsti leikurinn var í gær og sá tapaðist 3-4 gegn Fram á heimavelli.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, var eftir leikinn spurður út í hvernig skarðið sem Ágúst skilur eftir sig verður fyllt.
„Þetta er mjög vont fyrir Blika, en frábært fyrir hann"
TENGT EFNI

„Þetta er mjög vont fyrir Blika, en frábært fyrir hann"

„Við erum með flotta leikmenn í Jonna (Jónatan Guðni Arnarsson), Degi (Dagur Örn Fjeldsted) og svo erum við að vonast til þess að Aron Bjarnason komi til baka á næstunni. Við leysum það innanhúss," sagði Ólafur Ingi.

Breiðablik á eftir að spila sjö deildarleiki og bikarúrslitaleik. Fyrir úrslitaleikinn gegn Aftureldingu spilar Breiðablik á móti Stjörnunni og KA.

Með betri miðjumönnum landsins
Það eru jákvæðar fréttir af Breiðabliki að Anton Logi Lúðvíksson er að snúa aftur á völlinn. Hann hefur komið inn á í síðustu tveimur leikjum.

„Við erum búnir að sakna Antons Loga mikið, hann er gríðarlega öflugur og er með betri miðjumönnum landsins. Það er gott að hann sé að koma aftur, við þurfum að trappa hann upp í rólegheitum," sagði Ólafur.
Anton Logi er öflugur miðjumaður.

Anton Logi er öflugur miðjumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi: Algjörlega óboðlegur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.