Fotbolti.net
25.08.26 - 15:32
Kári Snorrason

KR með fleiri snertingar í teig andstæðingsins en Valur og FH til samans

KR er með mikla yfirburði í umræddum tölfræðiþætti.

KR er með mikla yfirburði í umræddum tölfræðiþætti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

KR er það lið sem hefur tekið flestar snertingar inni í teig andstæðinganna í Bestu deildinni í sumar samkvæmt gagnagrunni Fotmob.

Yfirburðir KR í þeim tölfræðiþætti eru í raun afskaplega miklir. Vesturbæingar eru með 257 snertingum fleiri en Víkingur sem er í 2. sæti yfir snertingar í teig andstæðinga.

Ef snertingar Vals (497) og FH (434) í teig andstæðingsins væru teknar saman þá myndi það samt ekki ná upp í fjölda KR.

Yfirburðirnir endurspegla markafjölda vel en KR hefur skorað flest mörk í deildinni, 72 talsins.

Þór er liðið sem er með fæstu snertingar í teig andstæðingsins en það er sömuleiðis það lið sem hefur skorað fæst mörk í deildinni.
Snertingar í teig andstæðingsins:
KR - 961
Víkingur R. - 704
Fram - 655
Breiðablik - 597
Keflavík - 583
Stjarnan - 569
ÍA - 516
Valur - 497
KA - 465
FH - 434
ÍBV - 393
Þór - 366
Þór er með fæstu snertingar í teig andstæðingsins.

Þór er með fæstu snertingar í teig andstæðingsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.