Jói Berg hafnaði tilboði frá Sádi og átti samtöl um Burnley

Ég var ansi nálægt því að henda mér á eitt fyrir stuttu en ákvað að gera það ekki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

En eins og staðan var núna þá var ég ekki tilbúinn að flytja þangað aftur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þekkir vel til Craig Bellamy.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maður er að hugsa hvort maður eigi að hætta þessu eða hvort maður eigi að halda áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar marki með Breiðabliki 2008. 'Ég átti alveg samtöl við Breiðablik, en svo var það eitthvað sem ég var ekki tilbúinn í'

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Ég var ansi nálægt því að henda mér á eitt fyrir stuttu en ákvað að gera það ekki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann hefur verið orðaður við Breiðablik og sænska félagið GAIS vildi fá hann í sínar raðir.
Jói, sem er 35 ára, var til viðtals í FM95Blö á föstudag og var spurður út í stöðu mála.

Sagði frá skemmtilegum samskiptum við Jóa Berg - „Var mjög stoltur af því"
„Nei, það var einhver pæling á sínum tíma, en ég ákvað að gera það ekki. Ég átti alveg samtöl við Breiðablik, en svo var það eitthvað sem ég var ekki tilbúinn í. Ég spilaði 2008 í deildinni, var búinn að tikka í deildinni, væri kannski öðruvísi ef ég hefði ekki verið búinn að því. Ég ákvað að sleppa því í þetta skiptið, núna er ég bara að ákveða hvað skal gera og það kemur í ljós á næstu vikum."
Jói segir að Blikar hafi verið fagmannlegir í viðræðunum en hann og fjölskyldan voru ekki tilbúin að flytja til Íslands.
Auðunn Blöndal spurði Jóa hvort hann væri með tilboð frá félögum erlendis.
„Já, ég er með það. Ég var ansi nálægt því að henda mér á eitt fyrir stuttu en ákvað að gera það ekki. Það var félag í sandinum, Sádi-Arabíu," sagði Jói en nefnir ekki félagið.
Hann lék með Al-Orobah í Sádi tímabilið 2024/25 en flutti svo til Sameinuðu arabísku furstadæmanna og samdi við Al Dhafra.
„Sádi var aðeins harðara, en svo fluttum við til Abu Dhabi sem er frábær staður, frábært að vera með fjölskyldunni. Sádi er aðeins eftir á, svolítið harðara, en margt gott þar og frábært fólk - ekkert út á það að setja. En eins og staðan var núna þá var ég ekki tilbúinn að flytja þangað aftur."
Jói var spurður út í Burnley sem hann lék með á árunum 2016-24. Auddi spurði hvort það hefði verið einhver pæling að fara aftur þangað?
„Þú hefur kannski heyrt eitthvað. Það áttu sér stað einhver samtöl, en það var bundið við að ákveðinn stjóri myndi taka við því liði, sem gerðist ekki á endanum. Ég var búinn að vera þar í átta ár, búinn að gera allt sem hægt var að gera þar, þannig það var ekkert sem maður var svekktur yfir," sagði Jói í þættinum.
Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales, var nálægt því að taka við Burnley í sumar en hann og Jói þekkjast vel frá tíma þeirra saman í Burnley á árunum 2022-24.
Hann fór frá Breiðabliki 2009 og samdi þá við AZ Alkmaar í Hollandi. Hann hefur verið atvinnumaður síðan. Hann hefur spilað 102 landsleiki og skorað átta landsliðsmörk.
Heimild: FM95Blö

En eins og staðan var núna þá var ég ekki tilbúinn að flytja þangað aftur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þekkir vel til Craig Bellamy.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maður er að hugsa hvort maður eigi að hætta þessu eða hvort maður eigi að halda áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar marki með Breiðabliki 2008. 'Ég átti alveg samtöl við Breiðablik, en svo var það eitthvað sem ég var ekki tilbúinn í'

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason


