Arbeloa ráðinn stjóri Fulham (Staðfest)

Mynd: Fulham

Mynd: Fulham
Spánverjinn Alvaro Arbeloa hefur verið ráðinn stjóri Fulham. Hann tekur við af Marco Silva sem hætti hjá félaginu til að taka við Benfica í síðasta mánuði.
Arbeloa er 43 ára en hann skrifar undir þriggja ára samning við enska félagið.
Arbeloa þekkir vel til á Englandi. Hann ólst upp hjá Real Madrid en spilaði með Liverpool frá 2007-2009. Hann sneri síðan aftur til Real Madrid en lauk ferlinum hjá West Ham tímabilið 2016-17.
Hann þjálfaði hjá varaliði Real Madrid áður en hann tók við aðalliðinu til bráðabirgða eftir að Xabi Alonso var látinn taka pokann sinn í byrjun þessa árs.
„Það er mér mikill heiður að hefja þennan nýja áfanga hjá Fulham FC, elsta félaginu í London. Ég finn fyrir mikilli ábyrgð og er innilega þakklátur herra Khan og Tony Khan fyrir traustið sem þeir hafa sýnt mér hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni," sagði Arbeloa.
„Ég hlakka virkilega til að upplifa andrúmsloftið í Craven Cottage með aðdáendum Fulham og hefja undirbúningstímabilið með leikmönnunum í næstu viku. Ég er viss um að við munum njóta ótrúlegrar ferðar saman.“

Welcome to Fulham, Álvaro Arbeloa. ????
— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 7, 2026