Fotbolti.net
07.12.21 - 13:56
Elvar Geir Magnússon

Varane og Cavani byrja að æfa með liðinu á mánudag

Raphael Varane.

Raphael Varane.

Canon

Mynd: EPA

Ralf Rangnick staðfesti á fréttamannafundi í dag að hann býst við að varnarmaðurinn Raphael Varane og sóknarmaðurinn Edinson Cavani fari að æfa með samherjum sínum næsta mánudag.

Það er farið að fjölga á æfingum United en Varane, Cavani, Luke Shaw og Jesse Lingard voru allir myndaðir á æfingasvæðinu í dag. Þá er vonast til þess að Anthony Martial snúi aftur til æfinga í næstu viku.
United mætir Young Boys í Meistaradeildinni á morgun en liðið er þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum. Rangnick hefur opinberað að markvörðurinn Dean Henderson og miðjumaðurinn Donny van de Beek byrji báðir í leiknum.

Á fundinum staðfesti Rangnick einnig að hann væri að ráða þýska íþróttasálfræðinginn Sascha Lense í sitt teymi. Þá staðfesti hann að Bandaríkjamaðurinn Chris Armas kæmi inn í þjálfaraliðið.

Armas var stjóri Toronto í MLS-deildinni en var rekinn þaðan í júlí. Áður stýrði hann New York Red Bulls í tvö ár. Rangnick þekkir Armas í gegnum Red Bull tenginguna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.