Fotbolti.net
08.09.26 - 14:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Omar Sowe bjartsýnn á að ná næsta leik

Omar Sowe bjartsýnn á að ná næsta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe, framherji ÍBV, fór af velli í fyrri hálfleik þegar ÍBV heimsótti Stjörnuna í Miðgarð á sunnudag.

Omar, sem er markahæsti leikmaður botnliðsins með fimm mörk, er bjartsýnn á að ná næsta leik sem verður einmitt líka gegn Stjörnunni, en sá leikur verður á Samsung vellinum sem er orðinn klár eftir að skipt var um gervigras. Sá leikur er liður í 1. umferð deildarinnar eftir tvískiptingu.
„Ég fann bara smá verk í mjöðminni, engin tognun eða neitt alvarlegt, en mér leið bara ekki vel og vildi ekki taka neina áhættu. Ég held það sé mikilvægara að klára tímabilið heill og vonandi verð ég klár fyrir leikinn á sunnudag," segir Omar við Fótbolta.net.

Omar, sem er 25 ára framherji, er með lausan samning eftir tímabilið og óvíst er hvar hann spilar á næsta tímabili. Hann sleit krossband í maí í fyrra og sneri aftur á völlinn á þessu tímabili.

ÍBV er með 18 stig á botni deildarinnar en þrjú stig eru upp í öruggt sæti þegar fimm leikir eru eftir gegn næstu fimm liðum fyrir ofan Eyjamenn í deildinni.

Neðri hlutinn - 1. umferð
sunnudagur 13. september
14:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
14:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Valur24-331
2Stjarnan24-931
3FH24-627
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV24-1519
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.