08.01.20 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Arsenal ætlar ekki að gera tilboð í Lemar í þessum mánuði

Thomas Lemar.

Mynd: Getty Images

Thomas Lemar.

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur áhuga á sóknarmiðjumanninum Thomas Lemar hjá Atletico Madrid. <i>Goal</i> greinir frá því að enska félagið ætli þó ekki að gera tilboð í hann núna í janúarglugganum.
Þessi 24 ára leikmaður á ekki lengur fast sæti í liði Atletico en honum hefur hvorki tekist að skora né leggja upp á þessu tímabili.
Ýmsir fjölmiðlar segja að Atletico sé tilbúið að losa Lemar til að lækka launakostnað.

Lemar hefur einnig verið orðaður við Tottenham en Jose Mourinho er aðdáandi hans. Þá vill Lyon fá þennan fyrrum leikmann Mónakó.
Lemar á 22 landsleiki fyrir Frakkland.
Lemar á 22 landsleiki fyrir Frakkland.