Fotbolti.net
08.02.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Rooney valinn í landsliðshópinn.(Staðfest)

Þrátt fyrir að Sven Göran Eriksson hafi ekki séð Wayne Rooney spila í dag þá valdi hann Rooney í landsliðshópinn sem mætir Áströlum í vinnáttuleik næstkomandi miðvikudag. Ef ekkert óvænt kemur upp verður Rooney því yngsti leikmaðurinn sem spilað hefur fyrir Enska landsliðið. Margt óvænt er í hópnum og meðal annars eru Francis Jeffers og Matthew Upson í honum.
Ungliðarnir Jeremaine Jenas, Sean Davis, James Beattie og Paul Robinsson er allir í hópnum. Einnig er Charlton dúettið Scott Parker og Paul Konchesky í hópnum. Til að þessir leikmenn komi inn þurfa eldri leikmenn eins og Trevor Sinclair, Nicky Butt, Gareth Southgate og Robbie Fowler að víkja auk þess sem David Seaman er hvíldur. Lið leikmanna hafa fengið loforð frá Sven Göran um að hver leikmaður leiki aðeins 45.mínútur en leikurinn er í beinni á Sýn næsta miðvikudag.




Hér er svo hópurinn í heild sinni:



Markmenn:
James (West Ham), Robinson (Leeds), Wright (Everton)


Varnarmenn:
G Neville (Man Utd), A Cole (Arsenal), Mills (Leeds), Konchesky (Charlton), Ferdinand (Man Utd), Campbell (Arsenal), King (Tottenham), Brown (Man Utd), Upson (Birmingham)


Miðjumenn:
Beckham (Man Utd), Scholes (Man Utd), Lampard (Chelsea), Hargreaves (Bayern Munich), Dyer (Newcastle), Jenas (Newcastle), Davis (Fulham), Parker (Charlton), Murphy (Liverpool), Joe Cole (West Ham)


Framherjar:

Owen (Liverpool), Rooney (Everton), Beattie (Southampton), Vassell (Aston Villa), Jeffers (Arsenal).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.