Fotbolti.net
08.02.21 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Carragher óttast að Liverpool missi af Meistaradeildarsæti

Jamie Carragher

Jamie Carragher

Canon

Mynd: Getty Images

Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports, segir að Liverpool eigi á hættu að missa af Meistaradeildarsæti.

Ensku meistararnir töpuðu 4-1 á heimavelli gegn Manchester City í gær og eru nú með 27 stigum minna en á sama tímapunkti á síðasta tímabili.
„Þetta er að ógna vonum Liverpool um að enda í topp fjórum. Þeir þurfa að gera eitthvað fljótlega. Sætin í topp fjórum liggja á lausu," sagði Carragher eftir leikinn í gær.

„Það hefði verið óhugsandi að segja þetta um þetta Liverpool lið í byrjun tímabils en það eru mörg lið að berjast um þessi sæti."

Næsti leikur Liverpool er gegn Leicester á útivelli á laugardaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.