Alexandra skoðar alla möguleika - „Ekkert búin að útiloka“

Alexandra Jóhannsdóttir er ánægð með lífið hjá Kristianstad en hefur ekki tekið ákvörðun um framtíðina og segist vera að skoða alla möguleika.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alexandra Jóhannsdóttir er ánægð með lífið hjá Kristianstad en hefur ekki tekið ákvörðun um framtíðina og segist vera að skoða alla möguleika.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir, segist vera að skoða alla möguleika varðandi framtíð sína en samningur hennar við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad rennur út í lok árs.

Alexandra: Fjögurra marka forskot breytir engu
Alexandra gekk til liðs við Kristianstad í upphafi árs 2025 eftir að hafa áður leikið með Fiorentina á Ítalíu og Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.
Hún hefur verið í stóru hlutverki hjá sænska félaginu og segist kunna vel við sig þar.
„Lífið í Svíþjóð er bara gott. Gott að vera í Kristianstad og gott íslenska samfélagið sem ég er með þar. Mér líður bara mjög vel,“ sagði Alexandra í samtali við Fótbolta.net.
Alexandra var spurð hvort nýr samningur við Kristianstad væri í kortunum eða hvort hún væri farin að horfa í kringum sig.
„Ég hef bara verið að skoða allt. Ekkert búin að útiloka neitt.“
Það er því enn óljóst hvar Alexandra mun leika á næsta tímabili en hún hefur komið víða við á atvinnumannsferlinum.
Alexandra er þessa dagana stödd hér á landi með íslenska landsliðinu sem mætir Króatíu í seinni leik liðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu. Ísland vann fyrri leikinn 4-0 á útivelli og tekur á móti Króatíu á Laugardalsvellinum klukkan 17:30 í dag.

