Fotbolti.net
12.10.26 - 17:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Formaður ÍA: Lárus Orri er með áframhaldandi samning

Lárus Orri hefur stýrt ÍA í 18 mánuði.

Lárus Orri hefur stýrt ÍA í 18 mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það virðist ekki klárt mál að Lárus Orri Sigurðsson verði áfram þjálfari ÍA að tímabilinu loknu. Slúðrað hefur verið um að Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis og fyrrum leikmaður ÍA, hafi setið fund með Skagamönnum og virðist ekki útilokað að hann taki við liðinu.

Lárus Orri var spurður út í slúðrið og sagði eftirfarandi fyrr í dag: „Ég hef svarað spurningum um hluti sem ég veit um. Þetta veit ég ekki og hvet þig til að hringja í formanninn og spyrja hann að þessu. Hann hlýtur að geta svarað fyrir það."
Lárus bendir á staðreyndir - „Gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum"
TENGT EFNI

Lárus bendir á staðreyndir - „Gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum"

Eggert Herbertsson er formaður fótboltadeildar ÍA. Hann var spurður út í stöðu mála.

„Ég tjái mig ekki um starfsmenn í öðrum félögum, bæði af virðingu við félögin og starfsmennina sjálfa. Við erum bara að klára tímabil, reyna að gera það með sóma. Svo förum við að undirbúa næsta tímabil um leið og síðasti leikur er flautaður af. Það eru leikmenn að renna út á samningi, þjálfarar á samningi og alls konar pælingar í öllu. Orri bendir á að margt sem hann hefur gert hefur verið helvíti flott, og það er ekki spurning um það." segir Eggert.

Þú vilt á þessum tímapunkti ekkert segja um hans framtíð?

„Hann er með samning, það er bara þannig."

Eggert segir að stjórnin sé alltaf að hugsa hvernig sé hægt að styrkja og bæta félagið og það gildi eins með leikmenn, þjálfara og aðra sem koma að félaginu.
Eggert er formaður ÍA.

Eggert er formaður ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.